Borgarbyggð mun standa fyrir hreinsun jólatrjáa í Borgarnesi og á Hvanneyri föstudaginn 16. janúar næstkomandi. Íbúar sem enn eiga eftir að losa sig við sín jólatré geta sett þau við lóðarmörk við gangstéttar framan við hús sín og munu þau verða hirt upp þennan dag. Það er HS-verktak í Borgarnesi sem mun annast verkið. Ljósmynd: Guðrún Jónsdóttir
Skólafréttir GBF komnar út 2009
Sjötta tölublað Skólafrétta Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum og Hvanneyri er nú komið út. Í blaðinu er m.a. sagt frá nýjum starfsmönnum sem eru að hefja störf við skólann og boðað til fundar foreldra nemenda í 7. og 9. bekk miðvikudaginn 14. janúar n.k. til að ræða ferðir nemenda í skólabúðir o.fl. Hér má nálgast Skólafréttir í heild sinni. …
Laust starf við leikskólann Hnoðraból – 2009
Starfsmaður óskast í 90% starf við leikskólann Hnoðraból að Grímsstöðum í Reykholtsdal sem fyrst. Leikskólinn Hnoðraból er lítill og notalegur einnar deildar leikskóli. Þar eru að jafnaði 15-20 börn á aldrinum 18 mánaða til 5 ára og 4-5 starfsmenn. Sérstök áhersla er lögð á hreyfingu og skapandi starf. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi áhuga á að starfa með …
Böðvar Guðmundsson sjötugur
Böðvar Guðmundsson rithöfundur frá Kirkjubóli er sjötugur í dag. Í tilefni tímamótanna verður efnt til listavöku í Íslensku óperunni næstkomandi sunnudag þar sem ýmsir þekktir listamenn flytja verk skáldsins. Einnig minnist Safnahús Borgarfjarðar Böðvars sérstaklega með umfjöllun um hann og verk hans á heimasíðu sinni: (www.safnahus.is). Eftir Böðvar liggja ljóðabækur, leikrit og skáldsögur og fjöldi þýðinga fyrir börn og fullorðna. …
Kennsla í meðhöndlun slökkvitækja
Föstudaginn 9. janúar nk. frá kl. 16 bjóða slökkviliðsmenn íbúum að koma á Slökkvistöðina í Reykholti og njóta leiðsagnar og kennslu í meðhöndlun slökkvitækja.
Þrettándabrennan 2009
Á bilinu 300-400 manns fylgdust með Þrettándabrennu sveitarfélagsins á Seleyri í gær. Veðrið var stillt, en nokkuð mikil rigning allan tímann. Það hafði þó ekki áhrif á framkvæmdina hjá Björgunarsveitinni Brák sem stóð með sóma að brennunni, skemmtiatriðum og glæsilegri flugeldasýningu. Örn Árnason fór með gamanmál og Steinunn Pálsdóttir kom fram ásamt nokkrum meðlimum Samkórs Mýramanna sem sungu áramótalög. …
Tilkynning frá Símenntunarmiðstöðinni á Vesturlandi
Námsvísir vorannar hefur komið inn um lúguna um þetta leyti, en brugðið verður út af vananum í þetta sinn. Ástæðan er sú að Símenntunarmiðstöðin á 10 ára afmæli á þessu ári eða 19. febrúar nk. Af því tilefni hefur stjórn stofnunarinnar skipað afmælisnefnd sem mun vinna að veglegu afmælisblaði sem verður gefið út á vormánuðum. Einnig er fyrirhugað að halda …
Gleðilegt heilsuræktarár 2009
Eins og alltaf þá er fólk duglegt að mæta í íþróttamiðstöðvarnar í byrjun árs og margir sem koma gera heilsurækt og slökun að lífstíl sínum og mæta flesta daga ársins í sund, heita potta, þreksal, spinning eða á sérstök átaksnámskeið sem þar standa til boða. Hér má sjá þau tilboð sem framundan eru í almenningsíþróttum og bendum við sérstaklega á …
Þrettándabrennan á Seleyri
Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi sér um þrettándabrennuna á Seleyri við Borgarnes fyrir hönd Borgarbyggðar. Brennan verður þriðjudaginn 6. janúar n.k. og verður kveikt í kl: 17:32! Boðið verður upp á glæsilega skemmtidagskrá svo sem tónlistaratriði með Steinku Páls og söngfuglum, Örn Árnason tryllir lýðinn og auðvitað einstök flugeldasýning Brákar! Allir velkomnir! Hér má nálgast auglýsinguna.
Verðskrá íþróttamiðstöðva Borgarbyggðar
Þann 1. janúar hækkaði gjaldskrá íþróttamiðstöðvanna í Borgarbyggð. Hækkunin nemur að jafnaði um 10% á hvern gjaldskrárflokk. Hér má nálgast gjaldskránna.