Opinn borgarafundur í Menntaskólanum

Opinn borgarafundur með frambjóðendum til alþingis verður haldinn á sal Menntaskóla Borgarfjarðar í kvöld, þriðjudaginn 21. apríl og hefst kl. 20:00. Frambjóðendur úr efstu sætum á listum kjördæmisins flytja framsögur og sitja fyrir svörum. Það eru þau Guðmundur Steingrímsson fyrir Framsóknarflokkinn, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Ragnheiður Ólafsdóttir fyrir Frjálslynda, Guðbjartur Hannesson fyrir Samfylkingu, Guðmundur Andri Skúlason fyrir Borgarahreyfinguna og …

Fundi um framtíð skólahalds frestað!

Umræðufundi með foreldrum barna í Grunnskóla Borgarfjarðar sem vera átti í kvöld í fundarsal Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri er frestað. Fræðslunefnd Borgarbyggðar boðar til fundar á sama stað miðvikudaginn 29. apríl næstkomandi og hefst hann kl. 20.30. Umræðuefnið er framtíð skólahalds. Allir foreldrar eru hvattir til að mæta.    

Götusópun í Borgarnesi og á Hvanneyri

Í næstu viku verða gangstéttar og götur sópaðar í Borgarnesi og á Hvanneyri. Íbúar eru vinsamlega hvattir til að leggja bílum sínum þannig að sópun geti gengið greiðlega. Borgarbyggð hefur þjónustusamning við HS-Verktak um götusópun, en undirverktaki á hans vegum mun annast verkið. Hafa má samband við Halldór hjá HS-Verktak í síma 892-3044 varðandi ábendingar eða nánari upplýsingar um verkið. …

Fundur um framtíð skólahalds

Fræðslunefnd Borgarbyggðar stendur fyrir umræðufundi með foreldrum barna í Grunnskóla Borgarfjarðar þriðjudaginn 21. apríl kl. 20.30 í fundarsal Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. (3. hæð) Umræðuefnið er framtíð skólahalds. Allir foreldrar eru hvattir til að mæta.  

Skeifudagur Grana

Skeifudagur Grana verður haldinn hátíðlegur í glæsilegri hestamiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands að Mið-Fossum á sumardaginn fyrsta. Grani er hestamannafélag nemenda við Landbúnaðarháskóla Íslands. Dagskráin hefst kl. 12:30. Þennan dag sýna nemendur í hrossarækt við LbhÍ afrakstur vetrarstarfsins í reiðmennsku og frumtamningum. Keppt verður um Gunnarsbikarinn, sem gefinn er af Bændasamtökum Íslands í minningu Gunnars Bjarnasonar, fyrrum hrossaræktarráðunauts og kennara á Hvanneyri. …

Stuttverkahátíðin Margt smátt

Fréttatilkynning frá BÍL Nú er komið að 5. stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, Margt smátt, í Borgarleikhúsinu. Hátíðin verður haldin laugardaginn 23. maí næstkomandi og verður hún með sama sniði og síðast, í október 2007, en mál manna var að sú hátíð hefði verið sérstaklega vel heppnuð. Borgfirsk leikfélög eru hvött til að taka þátt í hátíðinni og mæta í höfuðborgina …

Vantar upplýsingar um myndir

Í myndasafni Héraðsskjalasafns Borgfirðinga er mikið af myndum með óþekktu myndefni. Þessa dagana er uppi sýningarskápur með nokkrum slíkum myndum, sem tilheyra ómerktu myndaalbúmi í safninu. Reglubundið er leitað eftir aðstoð fólks við að greina ljósmyndir og hefur það reynst afar gagnlegt. Síðla sumars verða þau tímamót hjá héraðsskjalasafninu að opnaður verður ljósmyndavefur. Með þeim hætti getur fólk skoðað myndirnar …

Vortilboð í þolfimisal

Íþróttamiðstöðin Borgarnesi býður upp á vortilboð í þolfimisalnum fyrir þá sem vilja koma sér í form fyrir sumarið og smella sér á kröftug sérnámskeið í þolfimisalnum á sérstöku tilboðsverði. Námskeiðin hefjast strax í næstu viku og er skráning þegar hafin í afgreiðslu.   Námskeiðin eru í LesMills æfingakerfinu BodyPump, BodyCombat og BodyJam.   Sjá nánar hér á auglýsingu um tilboðin. …

Heimsókn frá Svíþjóð í Grunnskóla Borgarness

Unglingar í Óðali Sunnudaginn 19. apríl mun hópur nemenda og kennara frá Tullbroskolan í Falkenberg í Svíþjóð koma í heimsókn í Grunnskóla Borgarness. Falkenberg er vinabær okkar í Svíþjóð. Alls koma 37 manns til landsins og eru svíarnir að endurgjalda heimsókn frá því í haust. Þau verða hér á landi fram til föstudagsins 24. apríl. Dagskrá er hægt að nálgast …