Uglan 2010

Vorið er komið og þá er blásið til Fjölskyldu- og menningarhátíðar á leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi. Hátíðin verður á Sumardaginn fyrsta þann 22. apríl frá kl. 14.00 – 16.00 Þar verður sýning á verkum barnanna og kaffisala. Ágóðinn af kaffisölunni mun renna til kaupa á útileikföngum fyrir börnin. Ekki er posi á staðnum. Foreldrar, systkini, vinir, kunningjar, fjarskyldir ættingjar, allir …

Kátir krakkar í Safnahúsi Borgarfjarðar

mynd_GJKrakkar í útskriftarhópi frá leikskólanum Klettaborg voru glaðir í bragði þegar þeir komu til að skoða sýningu nemenda Varmalandsskóla í Safnahúsi Borgarfjarðar. Mest þótti þeim til um stóra fjallið með fossinum, þar sem útilegumaðurinn Fjalla-Eyvindur bjó með fjölskyldu sinni af því hann var útilegumaður. Einnig má á sýningunni sjá ýmis konar fjöll og tröll auk þess sem lesa má skemmtilega …

Lausar stöður við Grunnskólann í Borgarnesi 2010

Við Grunnskólann í Borgarnesi eru lausar til umsóknar kennarastöður, meðal kennslugreina eru heimilisfræði, almenn kennsla og erlend tungumál. Í skólanum er unnið eftir hugmyndafræði uppeldisstefnunnar „Uppeldi til ábyrgðar“, skólinn er „grænfánaskóli“ og er einnig virkur þátttakandi í þróunarverkefninu „Borgarfjarðarbrúin“. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við skólastjóra, Kristján Gíslason (kristgis@grunnborg.is ), í síma 437-1229 eða 898-4569 og fá þannig …

Fjölskylduskemmtun í Logalandi

Yngri deild Ungmennafélags Reykdæla stendur fyrir fjölskylduskemmtun í Logalandi á Sumardaginn fyrsta þann 22. apríl. Skemmtunin hefst kl. 14.00 og lýkur kl 17.00. Það verður frítt inn fyrir börn á leikskólaaldri, 500 kr. fyrir sex til fjórtán ára og 750 kr. fyrir fimmtán ára og eldri. Boðið verður uppá skemmtun og leiki fyrir alla fjölskylduna og grillaðar verða pylsur um …

Félagsmiðstöðin Óðal 20 ára

Félagsmiðstöðin Óðal fagnar 20 ára afmæli sínu núna í vikunni og verður mikið um dýrðir. Aðalmálið er að unglingar sem hafa verið í starfi í Óðali síðustu 20 ár og þykir vænt um starfið sem þar hefur verið unnið mæti á afmælisviðburði til að sýna sig og sjá aðra.   Sameiginleg afmælisnefnd sem skipuð var úr stjórn nemendafélags GB og …

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, verða afhent í 15. sinn við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 1. júní kl. 15.00. Heimili og skóli – landssamtök foreldra óska eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2010 frá einstaklingum, félögum eða hópum sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum, sem stuðla að eflingu skólastarfs og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins. Tilnefningar …

Ársskýrsla byggingafulltrúa

Hjá framkvæmdasviði Borgarbyggðar er nú komin út ársskýrsla byggingafulltrúa fyrir árið 2009. Skýrsluna má skoða hér.  

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð á ferð um Borgarfjörð

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð verður á tónleikaferðalagi í Borgarfirði dagana 17. – 19. apríl. Kórinn heldur tónleika í Reykholtskirkju laugardaginn 17. apríl kl. 16.00. Sunnudaginn 18. apríl syngur kórinn við messu kl. 14.00 í Borgarneskirkju og um kvöldið verða almennir tónleikar í hátíðarsal Háskólans á Bifröst kl. 20.00.Mánudaginn 19. apríl heldur kórinn ferna skólatónleika, í Varmalandsskóla (fyrir nemendur Varmalandsskóla og …