Nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri hafa í mörg ár teiknað jólakort sem þau hafa selt og hefur ágóðinn af sölunni runnið til góðgerðamála. Í ár rennur ágóðinn af jólakortasölunni til Pálfríðar Sigurðardóttur frá Stafholtsey, en hún gekkst undir erfiða hjartaaðgerð núna í haust. Jólakortin eru til sölu í skólanum og nemendur verða einnig með aðstöðu á jólamarkaðinum í Ullarselinu þann …
Frá Tónlistarskóla Borgarfjarðar
Breyting hefur orðið á jólatónleikum Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Söngdeildartónleikar sem vera áttu þann 14. desember hafa verið færðir fram til 10. desember næstkomandi og hefjast kl. 18.00. Nýja auglýsingu frá Tónlistarskólanum má skoða hér.
Til foreldra barna í dreifbýli
Akstursstyrkir á íþróttaæfingar 2010 Í desember ár hvert eru styrkir vegna aksturs barna og unglinga úr dreifbýli á skipulagðar íþróttaæfingar á vegum félaga í Borgarbyggð afgreiddir. Umsóknum skal skilað til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa í Ráðhús Borgarbyggðar með þeim gögnum sem óskað er eftir að fylgi s.k. nýjum reglum um þessa styrki. Reglur um akstursstyrki vegna íþróttaæfinga Reglur um akstursstyrki …
Blóðbankabíllinn í Borgarnesi á þriðjudag – 2010
Blóðbankabíllinn verður í Borgarnesi við Hyrnuna, þriðjudaginn 7. desember næstkomandi kl. 10.00 – 17.00. Allir eru velkomnir, jafnt nýir sem vanir blóðgjafar og Blóðbankinn vonast til að sem flestir sjái sér fært að koma og gefa blóð. Að jafnaði þarf bankinn um 70 blóðgjafa á dag. Blóðgjöf er lífgjöf.
Með fullri reisn – lokasýningar
Ungmennafélagið Íslendingur hefur undafarið sýnt leikritið „Með fullri reisn“ í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit. Leikstjóri er Margrét Ákadóttir. Nú er komið að lokasýningum hjá félaginu og verða síðustu sýningar laugardaginn 4. desember og sunnudaginn 5. desember og hefjast kl. 20.30.
Aðventutónleikar Kóraborgar
mynd_bhsAðventutónleikar Kóraborgar verða í Reykholtskirkju í kvöld, fimmtudaginn 2. desember og hefjast kl. 20.30. Kóraborg eru samtök kóra í Borgarfjarðarhéraði og nágrenni og er þetta í annað sinn sem tónleikarnir eru haldnir á þeirra vegum. Áður voru þessir tónleikar kenndir við Sparisjóð Mýrasýslu. Hér má sjá dagskrá tónleikanna.
Laus staða sálfræðings
Sálfræðingur óskast í 70% starf við félagsþjónustu Borgarbyggðar. Um er að ræða nýja stöðu vegna yfirtöku sveitarfélaga á þjónustu við fatlaða. Helstu verkefni eru þjónusta við börn og fjölskyldur og barnavernd. Við leitum að einstaklingi með fjölbreytta reynslu sem er tilbúinn til að taka frumkvæði og sýna sjálfstæði í vinnubrögðum. Við bjóðum upp á fjölbreytt verkefni á sviði velferðarmála, svigrúm …
Laust starf kennara
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir kennara til starfa upp úr miðjum febrúar 2011 á Varmalandi v/ fæðingarorlofs. Um er að ræða umsjónakennslu í 5.-6.bekk. Húsnæði á staðnum. Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 430-1514/847-9262
Styrkir til úrbóta á ferðamannastöðum
Ferðamálastofa auglýsir styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2011. Sérstök áhersla verður lögð á öryggismál á ferðamannastöðum, verkefni þar sem heildrænt skipulag og langtímamarkmið eru höfð að leiðarljósi og aðgengi fyrir alla. Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2010. Nánari upplýsingar
Sýning á verkum Birgis Björnssonar
Næstkomandi þriðjudag kl. 17.00 verður opnuð í Safnahúsi sýning á málverkum eftir Borgnesinginn Birgi Björnsson. Um er að ræða sölusýningu í samstarfi Safnahúss og körfuboltadeildar Skallagríms, sem á verkin og rennur allur söluhagnaður af þeim til starfsemi hennar. Myndirnar á sýningunni eru gjöf til deildarinnar frá fjölskyldu Birgis, en hann lést í árslok 2009. Sýningin mun standa til 14. desember …