Gjaldskrá í allar laugar á vegum Borgarbyggðar Fullorðnir 480 kr. Börn 200 kr. Aldraðir 200 kr. Opnunartími sundlaugarinnar að Varmalandi frá 1. júní til 14. ágúst: Lokað þriðjudaga. Mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 12 – 18. Föstudaga kl. 12 – 21. Laugardaga og sunnudaga kl. 11 – 18. Öryrkjar 200 kr Opnunartími sundlaugarinnar í Borgarnesi: Kl. 6.30 – 21 …
Starf fjármálafulltrúa laust til umsóknar
Starf fjármálafulltrúa á skrifstofu Borgarbyggðar er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 31. maí n.k. Helstu verkefni fjármálafulltrúa eru: Umsjón með fjármálum sveitarfélagsins Gerð greiðsluáætlana Samskipti við bankastofnanir Gerð fjárhagsáætlana og eftirfylgni með þeim Umsjón með innheimtu Umsjón með innkaupum Hæfniskröfur: Menntun sem nýtist í starfinu en góð reynsla af sambærilegu starfi kemur einnig til greina Þjónustulund, …
Forvarnafundur í Þinghamri
Þriðjudagskvöldið 17. maí kl. 20:00 verður haldinn fræðslufundur fyrir foreldra barna og ungmenna í Borgarbyggð. Fundurinn verður haldinn í Þinghamri. Hliðstæður fundur var haldinn í Borgarnesi í apríl. Á dagskrá fundarins verða: 1. Vísbendingar um kannabisnotkun, neyslutól og fíkniefnahundurinn Tíri 2. Cannabis- efni, áhrif og afleiðingar 3. Forvarnir – hvaða leiðir hafa skilað árangri? 4. Umræður. Foreldrum er bent …
Sumarlesturinn kynntur í Safnahúsi
Þessar vikurnar er mikið um að vera á héraðsbókasafninu en þar standa yfir kynningar á sumarlestrinum sem verður í ár frá 10. júní til 10. ágúst. Kennarar í Grunnskólanum í Borgarnesi eru duglegir að koma með nemendur sína í kynningu á verkefninu hjá Sævari Inga Jónssyni héraðsbókaverði og eru nemendurnir þaðan alls um hundrað talsins. Í gærmorgun komu um 30 …
Málþing um málefni innflytjenda
Opið alþjóðlegt málþing um málefni innflytjenda verður haldið í Menntaskóla Borgarfjarðar næstkomandi miðvikudag kl. 9:00-12:00. Þátttakendur verða m.a. kennarar og nemendur sem sækja Borgarfjörð heim vegna Comeniusarverkefnisins „Migration and cultural influences“. Málþingið hefst með þremur erindum en að þeim loknum verður svokallað þjóðfundaform, rædd verða þemu á þjóðfundarborðum og niðurstöðum skilað í lok fundar. Málþingið fer fram á ensku og …
Gæsla fyrir börn fædd 2001 – 2004
Í gær, mánudag, rann út frestur til að skrá grunnskólabörn í gæslu í júnímánuði. Aðeins hafa borist tvær skráningar og því er skráningarfrestur framlengdur um viku. Um er að ræða gæslu sem verkstjórar og nemendur vinnuskólans verða með fyrir börn fædd 2001-2004. Starfsemin verður í Óðali og mun byggjast á inni- og útileikjum og vettvangsferðum. Tímabilið er frá og með …
Starf félagsráðgjafa
Félagsráðgjafi óskast til starfa við félagsþjónustu Borgarbyggðar. Helstu verkefni: félagsleg ráðgjöf, barnavernd, þjónusta við fatlaða, fyrirbyggjandi starf. Við leitum að einstaklingi með starfsréttindi í félagsráðgjöf sem er tilbúinn til að taka frumkvæði sem getur sýnt sjálfstæði í vinnubrögðum sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum Borgarbyggð býður upp á fjölbreytt verkefni á sviði velferðarmála svigrúm til nýrra verkefna og vinnubragða …
„Séra Magnús“ – ný sýning í Safnahúsi
Föstudaginn 13. maí næstkomandi verður opnuð ný sýning í Safnahúsi í tilefni af 50 ára afmæli Héraðsskjalasafnsins. Sýningin hefur hlotið heitið Séra Magnús og er um ævi Magnúsar Andréssonar (1845-1922) sem bjó á Gilsbakka í Hvítársíðu frá árinu 1881, ásamt sinni mætu konu Sigríði Pétursdóttur. Séra Magnús var m.a. alþingismaður Mýramanna um margra ára skeið og kom þar að mótun …
Frumkvöðull ársins 2010
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi óska eftir tilnefningum um einstaklinga/fyrirtæki sem skara fram úr í þróun nýrrar vöru, þjónustu eða viðburða í landshlutanum. Dugnaður og frumkvæði eru mikilvægir eiginleikar ekki síst í smáum samfélögum. Þessir eiginleikar jafnvel fárra einstaklinga geta skipt sköpum um það hversu lífvænlegt er að búa í hinum dreifðu byggðum landsins. Í ljósi breyttra efnahagslegra forsenda …
Námskeið um einhverfu
Fimmtudaginn 5. maí kl. 20:00 verður haldið námskeið um einhverfu á vegum fjölskyldusviðs Borgarbyggðar í samkomusal Menntaskólans í Borgarnesi. Námskeiðið er ætlað fólki á einhverfurófi, fjölskyldum þess sem og öðrum þeim sem áhuga hafa. Námskeiðið stendur í tvo og hálfan til þrjá tíma. Þann sama dag kl. 13:30 verður námskeiðið haldið fyrir starfsfólk grunnskólanna í Borgarbyggð. Það stendur einnig opið …