Sveppatínsla með fræðsluívafi verður í Einkunnum miðvikudaginn 22. ágúst kl 18-20. Stjórnarmenn í Skógræktarfélaginu ætla að leiðsegja fólki um tínslu, meðferð og geymslu sveppa. Allir velkomnir með körfu og hníf, ekki sakar að taka með handbók um sveppi ef fólk á slíkan grip.
Merk gjöf til Safnahúss
Ein myndanna sem enski aðalsmaðurinn W. G. Collingwood málaði á Íslandi sumarið 1897 hefur verið afhent Safnahúsi Borgarfjarðar til eignar og varðveislu. Um er að ræða mynd sem Collingwood málaði á Gilsbakka í Hvítársíðu þegar hann dvaldi þar á ferðum sínum um íslenska sögustaði. Alls málaði Collingwood þrjár myndir á Gilsbakka þetta sumar, eina af bænum sjálfum og aðra af …
Sundlaugin á Kleppjárnsreykjum lokuð
Sundlaugin á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði verður lokuð vegna framkvæmda frá 7. til 24. ágúst. Sundáhugafólki er á þessum tíma bent á sundlaugarnar í Húsafelli, Varmalandi, Borgarnesi og Hreppslaug í Andakíl.
Grunnskóli Borgarfjarðar – matráður og skólaliði
Laus störf í Grunnskóla Borgarfjarðar næsta skólaár. Staða matráðs í Hvanneyrardeild skólans og staða skólaliða í Varmalandsdeild. Allar nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 847-9262. Einnig má senda fyrirspurnir á netfang inga@gbf.is
Til foreldra vegna bæjarhátíða sumarsins
Fjölskyldan saman á bæjarhátíðum og foreldrar góðar fyrirmyndir! Bæjarhátíðir eru árlegur viðburður á mörgum stöðum. Litlir sem stórir bæir víðs vegar um landið lifna við og taka stakkaskiptum. Hús, garðar og götur eru skreytt og mikil stemning myndast. Íbúar kappkosta að sýna gestum það besta sem bærinn þeirra hefur upp á að bjóða og gera hátíðina í ár betri …
Brother Grass í Skallagrímsgarði
Hljómsveitin Brother Grass ásamt Samfélagssjóði Landsvirkjunar og Menningarráði Vesturlands bjóða íbúum Borgarbyggðar og nágrennis, ungum sem öldnum á þátttökutónleika í Skallagrímsgarði, mánudaginn 9. júlí kl 13:00.Hljómsveitin samanstendur af 4 söngkonum og einum gítarleikara og er því mikil áhersla lögð á þéttar raddsetningar og vandaðan gítarleik en einnig leika meðlimir sveitarinnar á hin ýmsu hljóðfæri og hljóðgjafa sem eru í óhefðbundnari …
Uppgjör vinnuskólans
Krakkar sem starfað hafa í vinnuskóla Borgarbyggðar í sumar eru velkomnir í Skallagrímsgarð kl:10:00 mánudaginn 9. júlí n.k. þar sem framin verða almenn skemmtilegheit og sumarið gert upp. Í hádeginu ætlum við að grilla handa starfsmönnum vinnuskólanns og taka þátt í tónleikum hjá Brother Grass og enda svo daginn á að fara í sund í boði vinnuskólanns og íþróttamiðstöðvar. …
Hreinsun rotþróa hafin hjá Borgarbyggð
Hafin er vinna við hreinsun rotþróa í Borgarbyggð fyrir sumarið 2012 en Holræsa- og stífluþjónustu Suðurlands sér um losun rotþróa í sveitarfélaginu. Samningur sveitarfélagsins við verktakann miðar við að hver rotþró sé tæmd einu sinni á þriggja ára fresti. Til þess að hreinsun geti gengið auðveldlega fyrir sig þurfa húseigendur að tryggja óheft aðgengi að lóðum sínum og sjá til …
Vantar þig vinnu næsta vetur?
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir starfsfólki í eftirtalin störf næsta skólaár: Í Hvanneyrardeild skólans vantar matráð, starfsmann í skólasel í 40 % starfshlutfall og stuðningsfulltrúa í 50% starfshlutfall. Í Varmalandsdeild vantar skólaliða í rúmlega 80% stöðuhlutfall og í Kleppjárnsreykjadeild vantar skólaliða í 100% Grunnskóli Borgarfjarðar er heilsueflandi skóli og mikilvægt að matráður hafi þekkingu og áhuga á að …