Í sumar verður gróðursett töluvert við báðar innkomurnar inn í Borgarnes. Lokið hefur verið við gróðursetningu í tæplega 300 fermetra svæði til móts við Geirabakarí. Það er ljóst að mikið veðurálag er á þessu svæði og því óvíst hvernig gengur með þá ræktun. Plönturnar sem valdar voru í beðið eru þó allar vindþolnar og allar seltuþolnar nema birkið sem sett …
Dreifnám frá MB í Búðardal
Menntaskóli Borgarfjarðar og Dalabyggð hafa gert með sér samkomulag um að hefja rekstur framhaldsdeildar í Dalabyggð nú í haust. Menntaskóli Borgarfjarðar sér um og skipuleggur dreifnám fyrir nemendur í Búðardal. Nemendur stunda fjarnám með nútíma samskiptalausnum auk þess að koma þrisvar á önn í Borgarnes í stuttar námslotur. Dalabyggð leggur til húsnæði og nauðsynlegan búnað. Jenny Nilson hefur verið ráðin …
Sveitamarkaður í Reykholtsdal
Framfarafélag Borgfirðinga heldur sveitamarkað í Reykholtsdal næstkomandi laugardag, 13. júlí. Markaðurinn sem verður í gömlu hlöðunni í Nesi hefst kl. 13.00 og lýkur kl. 16.00. Margt spennandi og skemmtilegt á boðstólnum, handverk, matur og grænmeti úr héraði og fleira. Allir velkomnir. Sjá auglýsingu hér.
Gróðursetning við Skallagrímsvöllinn í Borgarnesi
Í fyrra gaf Skógræktarfélag Borgarfjarðar 100 plöntur til gróðursetningar við Skallagrímsvölinn í tilefni að því að Ungmennasamband Borgarfjarðar varð 100 ára. Nemendur í níunda bekk Grunnskólans í Borgarnesi gróðursettu af mikilli umhyggju og dugnaði þriðjung af þessum plöntum í fyrra fyrir neðan bílastæðið við íþróttahúsið. Sjá hér frétt frá í fyrra af vef Grunnskólans í Borgarnesi. Plönturnar sem þau gróðursettu …
Kleppjárnsreykjalaug – breyttur opnunartími
Opnunartíma sundlaugarinnar á Kleppjárnsreykjum hefur verið breytt. Sundlaugin er opin alla daga nema miðvikudaga. Mánudaga og fimmtudaga er opið frá kl. 11.00 – 20.00, þriðjudaga, föstudaga og um helgar er laugin opin frá kl. 11.00 – 18.00.
Pílagrímsganga frá Bæ í Skálholt
Félagið Pílagrímar hefur um skeið undirbúið opnun pílagrímaleiðar frá Bæ í Borgarfirði í Skálholt. Félagið vill minna á sameiginlega sögu þessara staða og tengja saman þessi fornu menningarsetur og kirkjumiðstöðvar með pílagrímsgöngu frá Bæjarkirkju í Andakíl í Skálholt. Félaginu Pílagrímar er hugleikið að minna á merkilegt upphaf kristinnar kirkju og bókmenntaiðju hér í Borgarfirði. Þess má einnig geta að Steinunn …
Rúlluplastsöfnun tefst enn
Tilkynnt var í frétt hér á heimasíðunni 25. júní 2013 að rúlluplastsöfnunin sem hefði átt að klárast 21. júni hefði tafist en henni yrði lokið laugardaginn 29. júní. http://www.borgarbyggd.is/frettir/nr/172657/ Íslenka gámafélagið náði ekki að klára verkið umræddan laugardag en hyggst ljúka yfirferðinni á morgun laugardaginn 6. júlí.
Framtíðarskipulag Skallagrímsgarðs
Mörgum unnendum Skallagrímsgarðs hefur lengi verið ljóst að hefja þyrfti endurnýjun gróðurs í Skallagrímsgarði sem ella mun láta verulega ásjá sökum aldurs og skuggamyndunar á næstu árum og áratugum. Til þess að slík endurnýjun skapi sem minnst rask og skili þeim árangri sem til er ætlast er nauðsynlegt að vinna áætlun þar sem að ákveðið er hvernig garðurinn skuli líta …
Velkomin í Safnahús Borgarfjarðar
Sýningarnar Börn í 100 ár og Ævintýri fuglanna í Safnahúsi Borgarfjarðar eru opnar alla daga í sumar frá kl. 13.00-17.00 og á öðrum tímum eftir samkomulagi. Í Hallsteinssal er sýning á myndlist Tolla og er hún opin alla virka daga frá kl. 13.00-18.00 en einnig um helgar kl. 13.00-17.00. Síðasti dagur sýningarinnar er 5. ágúst. Bókasafnið er opið á virkum …
Vel heppnuð Brákarhátíð
Brákarhátíðin 2013 fór fram í blíðskaparveðri um síðustu helgi. Skreytingar í gulum, rauðum og bláum hverfum settu svip sinn á umhverfið. Auk þess að skreyta og gera sínar götur glæsilegar höfðu íbúar tekið til hendinni þannig að allt var fágað og fínt. Víða mátti finna ilmandi matarlykt á föstudagskvöldið þegar íbúar söfnuðust saman í sínum hverfum og grilluðu og nutu …