Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, boðar til opins fundar um frumvarp til laga um náttúrupassa í dag, þriðjudaginn 13. janúar kl. 16:30 í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Fundurinn er haldinn undir yfirskriftinni Hvað er náttúrupassi? og á honum mun ráðherra kynna frumvarpið og svara fyrirspurnum. Fundarstjóri verður Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst. Allir áhugasamir hvattir til að mæta. …
Ráðstefna um framtíð háskóla í Borgarbyggð
Hér má sjá dagskrá ráðstefnunnar
Borgarbyggð auglýsir eftir sviðsstjóra fjölskyldu- og fjármálasviðs
Við leitum að framsæknum leiðtoga í stöðu sviðsstjórafjölskyldu- og fjármálasviðs. Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með fjármálum, stjórnsýslu, fræðslumálum, íþrótta- og tómstundamálum, félagsþjónustu og menningarmálum. Verkefni og ábyrgðarsvið Ábyrgð á rekstri skrifstofu og framkvæmd málaflokka sem heyra undir sviðið Yfirumsjón með gerð fjárhags- og starfsáætlana fyrir sviðið og stofnanir þess Yfirstjórn stofnana sem heyra undir sviðið Vinnur að stefnumótun og mannauðsmálum fyrir …
Borgarbyggð auglýsir eftir sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs
Við leitum að framsæknum leiðtoga í stöðu sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs. Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með umhverfis-, hreinlætis- og sorpmálum, umferðar- og samgöngumálum, skipulags- og byggingarmálum, landbúnaðarmálum, fasteignaumsjón og áhaldahúsi, brunamálum og almannavörnum. Verkefni og ábyrgðarsvið Ábyrgð á rekstri og framkvæmd verkefna sem heyra undir sviðið Umsjón með gerð fjárhags- og starfsáætlana Yfirumsjón með skipulags- og byggingarmálum, umhverfismálum, sorpmálum, samgöngumálum, brunamálum …
Íþróttamaður Borgarfjarðar – verðlaunaafhending
Laugardaginn 10. janúar fer fram verðlaunaafhending í kjöri íþróttamanns Borgarfjarðar 2014. Athöfnin fer fram í Hjálmakletti í Borgarnesi og hefst kl. 14.00. Veittar verða ýmsar viðurkenningar og verðlaun til þess íþróttafólks sem náð hefur góðum árangri á árinu 2014. Nemendur frá Tónlistarskóla Borgarfjarðar koma fram og flytja tónlistaratriði og boðið verður uppá veitingar. Fjölmennum í Hjálmaklett og heiðrum íþróttafólkið okkar! …
Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri
Ný reglugerð og lög um skipan lögreglustjóra- og sýslumannsembætta í landinu tóku gildi um áramót. Úlfar Lúðvíksson fyrrum sýslumaður á Patreksfirði hefur tekið við embætti lögreglustjórans á Vesturlandi og Jón Haukur Hauksson lögmaður verður fulltrúi lögreglustjóran. Þá varð Lögreglan á Vesturlandi til um áramótin þegar lögregluliðin á Akranesi, Borgarfirði og Dölum og á Snæfellsnesi sameinuðust í eitt lögreglulið. Yfirlögregluþjónar verða …
Fjöliðjan í Borgarnesi – leiðbeinendur
Tveir leiðbeinendur óskast í Fjöliðjuna í Borgarnesi. Um er að ræða 80% starf og 50% starf. Fjöliðjan er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu. Við leitum að starfsmönnum með góða samskiptahæfni og sveigjanleika, hæfileika til að setja mörk og helst með reynslu af vinnu með fólki. Laun skv. kjarasamningum. Umsóknarfrestur til 20. janúar n.k. Nánari upplýsingar hjá forstöðumanni Fjöliðju: Lilju …
Litir Borgarness – sýning í Safnahúsi
Næstkomandi laugardag kl. 13.00 verður opnuð sýning á verkum Michelle Bird í Safnahúsi. Sýningin heitir Litir Borgarness og er fyrsta sýning listakonunnar hér á landi, en hún er nýflutt til Íslands og býr í Borgarnesi. Michelle hefur einnig stillt upp vinnustofu …
Þrettándagleði 2015 – breytt tímasetning
Vegna slæms veðurútlits hefur verið ákveðið að breyta tímasetningu þrettándagleðinnar í Englendingavík og verður hún laugardaginn 10. janúar og hefst kl. 17,00. Sjá nánar hér í auglýsingu
Hirðing jólatrjáa í Borgarnesi
Nú er 4. flokkur í knattspyrnu karla hjá Skallagrími að safna sér fyrir keppnisferð sem farin verður næsta sumar á Helsinki Cup í Finnlandi. Af því tilefni ætla strákarnir og foreldrar þeirra að safna saman og farga jólatrjám í Borgarnesi helgina 10. og 11. janúar 2015. Ef þú vilt losna við jólatréið og styrkja strákana í leiðinni vinsamlegast sendu tölvupóst …