Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi 12. febrúar að ráða Aldísi Örnu Tryggvadóttur í starf sviðsstjóra fjármála- og fjölskyldusviðs. Starfið var auglýst 9. janúar og var umsóknarfrestur til og með 26. janúar. Sextán umsækjendur sóttu um starfið en tveir drógu umsóknir sínar til baka. Aldís Arna lauk BS prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og prófi í verðbréfaviðskiptum frá sama …
Menningarsjóður Borgarbyggðar – 2015-02-12
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum Tilgangur hans er að efla menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök. Styrkir eru verkefnatengdir. Umsókninni fylgi sundurliðuð kostnaðarætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Fyrir árslok afhendist sjóðsstjórn skýrsla um nýtingu styrksins. Hægt er að sækja um …
Tilkynnig frá íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi
Kæru íbúar Eins og margir hafa orðið varir við hefur útisundlaugin í Borgarnesi verið köld undanfarið. Þetta er vegna mikillar vindkælingar sem verður, sérstaklega í vestanátt, þar sem skjól er lítið fyrir vindi úr þeirri átt. Allar götur síðan laugin var byggð árið 1997 hefur hún kólnað svona í vestanátt. Vestanátt er ekki ríkjandi vindátt í Borgarnesi, en hefur verið …
Forvarnafræðsla í boði Ungmennafélags Stafholtstungna
Á morgun, miðvikudaginn 11. febrúar verður nemendum í 7.-10. bekk Grunnskóla Borgarfjarðar boðið upp á forvarnafræðslu um netöryggi. Um fræðsluna sér Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, höfundur stuttmyndanna „Fáðu já!“ og „Stattu með þér“, Þórdís kemur frá Saft.is Forvarnarfræðslan er í boði Ungmennafélags Stafholtstungna og fer fram á skólatíma. Fræðsla fyrir forráðamenn og alla starfsmenn skólans er svo kl. 16:00 – 17:30 …
Safnahús lokað vegna jarðarfarar Egils Ólafssonar
Í dag, mánudaginn 9. febrúar verður lokað í Safnahúsi Borgarfjarðar vegna jarðarfarar Egils Ólafssonar blaðamanns. Egill hóf störf við ritun sögu Borgarness fyrir réttu ári síðan og var með starfsaðstöðu í Safnahúsi. Þar hans nú minnst með hlýhug sem góðs félaga og vandaðs manns sem vann verk sitt af stakri samviskusemi og alúð. Starfsfólk Safnahúss sendir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. …
Skipulagsauglýsingar í Borgarbyggð – 2015-02-09
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt að auglýsa eftirfarandi skipulög: Gamli miðbærinn í Borgarnesi – breytt deiliskipulag Sveitarstjórn samþykkti 18. júni 2014 tillögu að deiliskipulagi fyrir gamla miðbæinn í Borgarnesi til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð dags. 16. júní 2014 og felur meðal annars í sér breytingu á byggingarmagni og gerð nýs samkomutorgs. Tillagan verður auglýst …
112 dagurinn í Borgarbyggð – 2015
Í tilefni 112 dagsins, sem er að venju þann 11. febrúar, munu viðbragðsaðilar á svæðinu taka höndum saman til að vekja athygli á starfsemi sinni og ítreka mikilvægi þess að þekkja númerið 112 og hlutverk þess. Í ár verður öryggi og velferð barna í öndvegi og mikilvægi þess að börn og ungmenni geti brugðist rétt við slysum og erfiðum aðstæðum. …
Lausar lóðir í Borgarbyggð
Borgarbyggð auglýsir íbúða- og iðnaðarlóðir lausar til umsóknar. Um er að ræða eftirtaldar lóðir: Íbúðarhúsnæði: 24 lóðir í Borgarnesi, 28 lóðir á Hvanneyri, 6 lóðir á Varmalandi, 3 lóðir í Reykholti, 4 lóðir í Ásbrún í Bæjarsveit, samtals 64 lóðir. Iðnaðar- og athafnalóðir: 18 lóðir í Borgarnesi, 2 lóðir á Hvanneyri. Samkvæmt gr. 39 í vinnureglum um úthlutun lóða í …
Breyttur opnunartími í ráðhúsi
Í dag terkur gildi nýr opnunartími í ráðhúsi Borgarbyggðar. Framvegis verður ráðhúsið opið frá kl. 9.30 – 12.00 og kl. 12.30 – 15.00.
Íbúð til leigu í Borgarnesi – Íbúðalánasjóður
Íbúðalánasjóður auglýsir til leigu íbúð að Brákarbraut 4 í Borgarnesi Eignin eru auglýst á http://fasteignir.visir.is/ og http://www.mbl.is/leiga/ og hægt er að sækja um með því að senda inn umsókn á leiga@ils.is Þar á eingöngu að setja nafn eignar í subject, nafn umsækjanda, kt. og símanúmer í mailið. Eftir 2. febrúar verður unnið úr umsóknum og þeim svarað strax. Á meðan …