Sumaráætlun Strætó tekur gildi þann 7. júní. Helstu breytingar eru eftirfarandi: Leið 57 – Keyrir tvær ferðir til og frá Akureyri alla daga, einnig á laugardögum. Leið 58 – Keyrir tvær ferðir á dag alla daga. Leið 81 – Keyrir einungis mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga. Leið 82 – Keyrir alla daga og í sumum ferðum til Arnarstapa líkt og …
Einstaka ferðir Strætó falla niður á landsbyggðinni vegna verkfalla
Starfsgreinasambandið hefur boðað til verkfalla dagana 28. og 29. maí og ótímabundins verkfalls frá og með 6. júní. Komi til boðaðra verkfalla falla niður ferðir á eftirtöldum leiðum Strætó á verkfallsdögum: · Allar ferðir á leiðum 51,56,59,72,73,74, 75,78 og 79 · Leið 52 fellur niður kl 10:00 frá Mjódd og kl 12:35 frá Landeyjarhöfn Flestar ferðir á leið 57. Undantekningar …
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir mynd-og textilmenntakennara til starfa næsta skólaár
Ertu menntaður kennari sem vantar starf á fallegum stað í Borgarfirði í góðum skóla? Ef svo er, þá er Varmaland staður fyrir þig. Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfsstöðva grunnskóli með rúmlega 200 nemendur. Starfsstöðvar hans eru á Kleppjárnsreykjum, Varmalandi og Hvanneyri. Mynd-og textilmenntakennara vantar í Varmalandsdeild skólans frá og með 1. ágúst 2015 í 70% starfshlutfall. Launakjör eru …
Heimili og skóli verðlaunar Gleðileikana
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent í 20. sinn við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Anna Margrét Sigurðardóttir, formaður Heimilis og skóla, afhenti verðlaunin ásamt Gísla H. Guðlaugssyni, formanni dómnefndar. Gleðileikarnir í Borgarnesi hlutu Foreldraverðlaun Heimilis og skóla árið 2015. Umsögn um gleðileikana: Gleðileikarnir eru þrautaleikur þar sem nemendum á elsta stigi Grunnskóla Borgarness er skipt …
Grunnskólinn í Borgarnesi – lausar stöður
Lausar stöður við Grunnskólann í Borgarnesi Við leitum að öflugu fólki í eftirtaldar stöður frá og með 1. ágúst 2015 Umsjónarkennurum á yngra stig Tónmenntakennara Heimilisfræðikennara Sérkennara Menntun, reynsla og hæfni: Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla. Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og sköpunarkjarkur. Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar. Góð kunnátta í íslensku skilyrði. Óskað er eftir …
Skýrslur starfshópa – fræðslumál og eignir
Á fundi sveitarstjórnar í gær, miðvikudaginn, 20. maí voru lagðar fram skýrslur tveggja starfshópa. Annars vega skýrsla starfshóps um rekstur og skipulag fræðslumála í Borgarbyggð og hins vegar skýrsla starfhóps um eignir. Skýrslurnar má lesa hér: Rekstur og skipulag fræðslumála 2015 Skýrsla um eignir Borgarbyggðar 2015
Dagur góðra verka – opið hús í Fjöliðjunni
Fjöliðjan í Borgarnesi er aðili að Hlutverki, sem eru samtök um vinnu og verkþjálfun á Íslandi. Tilgangur samtakanna er margþættur. Meðal annars að stuðla að samstarfi um uppbyggingu á starfsþjálfun, hæfingu og endurhæfingu fyrir einstaklinga til starfa á vinnumarkaði. Þann 22. maí verður sameiginlegt átak sambandsaðila Hlutverks undir yfirskriftinni Dagur góðra verka. Af því tilefni verður opið hús í Fjöliðjunni, …
Opið hús í Andabæ og Hnoðrabóli
Leiðtogarnir í leikskólunum Andabæ og Hnoðrabóli í Borgarbyggð bjóða á opið hús fimmtudaginn 28. maí 2015 frá kl. 14:00 – 15:45. Þar munu þeir sýna hvað þeir hafa verið að gera í vetur og hvernig þeir vinna með venjurnar 7 og þjálfa leiðtogafærni sína út frá hugmyndafræði Leiðtogans í mér. Einnig verða sýnd önnur verkefni. Sjá nánar hér í …
Mistök við útsendingu innheimtubréfa
Þau leiðu mistök áttu sér stað að Borgarbyggð sendi út innheimtubréf á kröfur sem ekki voru komnar á eindaga. Í innheimtubréfunum kemur fram að gjalddagi sé 31.03.´15 en réttur gjalddagi er 15.04.´15 og því var eindagi 15.05.´15. Þessar kröfur voru því ekki komnar á eindaga þegar innheimtubréfin voru gefin út þann 12.05.´15. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Lokun vegna verkfalls
Vegna verkfalla stefnir í að mötuneyti Grunnskólans í Borgarnesi á Hóteli Borgarnesi verði lokað á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku. Nemendur þurfa því að koma með hollt og gott nesti þessa daga. Ef verkfall leysist helst allt óbreytt. Nánari upplýsingar veitir Hilmar Már Arason starfandi skólastjóri.