Skýrsla sveitarstjóra 14. janúar

Kolfinna Jóhannesdóttir flutti skýrslu sveitarstjóra á fundi sveitarstjórnar 14. janúar. Í máli sínu fór hún yfir nokkur þau verkefni sem unnið hefur verið að að undanförnu. Fundargerð sveitarstjórnar er hægt að nálgast á vef Borgarbyggðar. Skýrsluna má nálgast hér.  

Skemmtilegt samstarf leik – grunnskóla.

Í vikunni kom 5.bekkur úr Grunnskóla Borgarfjarðar, Kleppjárnsreykjadeild í heimsókn í leikskólann Hnoðraból og tóku elstu börn leikskólans á móti þeim. Börnin kynntu sig öll og við tók dagskrá þar sem börnunum var skipt í þrjá hópa. Hóparnir fóru í stafaleik, 5.bekkingar lásu frumsamdar sögur og að lokum settu allir handarfarið sitt á vináttuhring. Hann táknar samstarf og vináttu milli …

Listsköpun unga fólksins

Samstarfsverkefni Tónlistarskólans og Safnahússins tengt borgfirskum skáldum er nú komið í fullan gang og er það í fjórða sinn sem það kemst til framkvæmda. Verkefnið snýst um að hvetja ungt fólk til listsköpunar á grundvelli borgfirskra texta og þetta árið er það höfundarverk Snorra Hjartarsonar sem varð fyrir valinu. Snorri var fæddur á Hvanneyri árið 1906 og ólst upp á …

Vinnuhópar um umhverfis- og skipulagsmál og fjölskyldu og menningarmál

Vinnuhópar um hagræðingu í rekstri málaflokka á sviði umhverfis- og skipulagsmála og fjölskyldu og menningarmála hafa lokið störfum. Skýrslur hópana voru framlagðar á fundi byggðaráðs 17. desember sl. Skýrslurnar má nálgast hér.   Fjölskyldu- og menningarmál. Umhverfis og skipulagsmál    

Skipulagsmál í Borgarnesi- kynningarfundur

Þriðjudaginn 12. janúar verður haldinn fundur í Hjálmakletti í Borgarnesi kl. 20.00 til 21.30. Á dagskrá verður meðal annars kynning á tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Borgarbraut 55, 57 og 59.Einnig verða til sýnis önnur skipulög sem eru í auglýsingaferli. Kaffi á könnunni.    

143. fundur sveitarstjórnar Borgarbyggðar

SVEITARSTJÓRN  BORGARBYGGÐAR  FUNDARBOÐ   FUNDUR     Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Borgarbyggðar fimmtudaginn 11. Ágúst 2016 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og hefst kl. 16:00.     DAGSKRÁ   Skýrsla sveitarstjóra Fundargerð sveitarstjórnar 9.6.                         (142) Fundargerð byggðarráðs 4.8.                                     (384) Fundargerð fræðslunefndar 21.6. …

Heyrúlluplast

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um endanlega útfærslu á söfnun á heyrúlluplasti árið 2016 en til að bregðast við brýnni þörf hefur verið ákveðið að fyrsta rúlluplastssöfnun ársins verði farin vikuna 25.-29. janúar 2016. Einhverjir hafa þegar óskað eftir að láta sækja hjá sér plast hið fyrsta en allir þeir sem vilja láta sækja hjá sér plast í þessari ferð …

Kynningarfundur Erasmus+

Kynningarfundur um tækifæri og styrki íErasmus+ Hvar: Hjálmaklettur, Borgarbraut 54 í BorgarnesiHvenær: 11.janúar 2016, kl. 15:00-16:30 DagskráErasmus+ mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlun ESB – tækifæri til þátttöku fyrir skóla, sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki. Erasmus+ menntun og tveir meginflokkar umsókna Nám og þjálfun – umsóknarfrestur 2. febrúar 2016Samstarfsverkefni – umsóknarfrestur 31. mars 2016Andrés Pétursson og Sigríður Vala Vignisdóttir sérfræðingar hjá Rannís. Ráðgjöf …