Í samræmi við skýrslu vinnuhóps um framtíðarskipulag sorphirðu hefur verið ákveðið að fækka enn frekar opnum gámasvæðum í sveitarfélaginu. Gámar við Háfslæk/Tungulæk verða fjarlægðir á næstu dögum, í síðasta lagi föstudaginn 8. apríl. Gámastöðin við Sólbakka í Borgarnesi er opin virka daga milli kl. 14 og 18 og á laugardögum milli kl. 10 og 14. Tökum ábyrgð á …
Spjaldtölvur afhentar
Borgarbyggð afhenti í dag rúmlega eitt hundrað spjaldtölvur til skólastjórnenda leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Markmiðið með spjaldtölvuvæðingu skólanna er aukin einstaklingsmiðun og fjölbreytni náms og kennslu auk þess að stefnt er að því að auka þátt nýsköpunar í skólastarfi. Spjaldtölvuvæðing skólanna er liður í að styrkja innra starf skóla í Borgarbyggð og einn þáttur í innleiðingu þeirra skólastefnu sem nú …
Kleppjárnsreykir – laust starf
Vegna forfalla vantar stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Borgarfjarðar Kleppjárnsreykjadeild. Um er að ræða 75% starf. Umsækjandi þarf að geta hafið störf strax. Upplýsingar veitir Ingibjörg Adda Konráðsdóttir í síma 8401520.
Sumarstörf hjá Borgarbyggð 2016
Borgarbyggð auglýsir laus til umsóknar eftirfarandi sumarstörf árið 2016 Flokkstjórar Vinnuskólans Starfssvið: Umsjón með hópum í almennum garðyrkjustörfum, gróðursetningu og hirðingu á opnum svæðum. Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði: 20 ára lágmarksaldur og reynsla af starfi með ungmennum. Vinnuskólinn verður með starfsstöðvar á fjórum stöðum í sveitarfélaginu: Á Hvanneyri Á Bifröst Í Reykholti Í Borgarnesi Leiðbeinendur í Sumarfjöri og …
Gleðileikarnir í Borgarnesi – hvað er það?
Foreldrafélag Grunnskóla Borgarness stendur fyrir Gleðileikunum sem eru uppbrot á hefðbundnu skólastarfi hjá unglingum Grunnskólanum í Borgarnesi. Þeir verða nú haldnir þriðja árið í röð, dagana 12. og 13. apríl n.k. Þeir eru settir upp sem samfélagsverkefni þar sem fyrirtæki og einstaklingar skipuleggja þrautabraut sem unglingunum er ætlað að fara í gegnum. Leitað er til aðila í samfélaginu eftir stuðningi …
Framlenging á umsóknarfresti
Umsóknarfrestur um styrk til fatlaðra vegna náms eða tækjakaupa er framlengdur til mánudagsins 4. Apríl. Umsóknir sendist til Félagsþjónustu Borgarbyggðar. Nánari upplýsingar hjá félagsmálastjóra, s: 4337100 hjordis@borgarbyggd.is
Tafir á losun úrgangs í dreifbýli
Vegna þungatakmarkana á vegum í Borgarbyggð má gera ráð fyrir töfum á losun úrgangs í dreifbýli. Sama gildir um söfnun rúlluplasts, en ekki er hægt að segja fyrir um nákvæmar tímasetningar að svo stöddu. Fólk er beðið um að sýna þessu skilning og beðist er velvirðingar á þessu, en gert er ráð fyrir að úrgangur verði sóttur um leið og …
Aðstoðarmatráður í leikskólann Ugluklett
Viltu koma og vinna á frábærum vinnustað Vegna forfalla (fæðingarorlofs) vantar okkur í Uglukletti aðstoðarmatráð í mötuneyti leikskólans. Í leikskólanum er allur matur eldaður frá grunni svo það væri kostur að umsækjandi hefði brennandi áhuga á hollu mataræði og reynslu af matargerð. Vinnutími er 9.00 – 13.00 (50% starfshlutfall) og þarf umsækjandi að geta hafið störf sem fyrst. Laun skv. …
Úrgangsmál í Borgarbyggð
í síðustu viku var haldinn opinn fundur um úrgangsmál í Borgarbyggð. Á fundinum kynnti formaður umhverfis-, skipulags-, og landbúnaðarnefndar fyrirkomulag sorphirðu og úrgangsmála í sveitarfélaginu í dag og að því loknu voru flutt nokkur áhugaverð erindi um málefnið. Meðal þess sem kom fram, er að ekki þarf lengur að setja endurvinnsluúrgang í glæra plastpoka, heldur er í góðu lagi …
Opnunartími um páskana í sundlaugum Borgarbyggðar
Sundlaugin í Borgarnesi: 24.mars Skírdagur opið frá 9:00 – 18:00 25.mars Föstudaginn langa lokað 26.mars laugardag opið frá 9:00 – 18:00 27.mars Páskadag lokað 28.mars annan í páskum opið frá 9:00 – 18:00 Sundlaugin á Kleppjárnsreykjum – lokað Sundlaugin á Varmalandi – lokað

