Sundkeppni sveitarfélaganna

Þá er lokið sundkeppni sveitarfélaganna sem haldin var í tilefni hreyfiviku UMFÍ. Íbúar Borgarbyggðar hafa verið duglegir að synda en sveitarfélagið er í 11. sæti með 84 m. á hvern íbúa. Lokaúrslit eru eftirfarandi: 1 Rangárþing Ytra, Hella 487m á hvern íbúa Samtals 401.200km 2 Hrísey 413m á hvern íbúa Samtals 64.375km 3 Rangárþing Eystra, Hvolsvöllur 268m á hvern íbúa …

Kvennahlaup ÍSÍ Borgarnesi

Kvennahlaupið fer fram 4.júní kl 11. Hlaupið verður frá íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Hlaupin verður vegalengd við alla hæfi. Bolirnir verða seldir í Nettó fimmtudaginn 2.júní og föstudaginn 3.júní milli 16-19. Bolur á fullorðinn kostar 2000.- og barnabolirnir kosta 1000.- Verðið á bolunum er um leið þátttökugjald í hlaupinu og fá allir viðurkenningu í lok hlaups.

Leiðtogadagur í Andabæ

Í dag, 27. Maí, var Leiðtogadagurinn haldinn á leikskólanum Andabæ. Að þessu sinni var fulltrúum skóla og fyrirtækja á staðnum boðið í heimsókn. Börnin tóku á móti gestunum og buðu þeim í salinn þar sem börnin sungu tvö lög. Að því loknu voru það leiðsagnarleiðtogar sem leiddu gestina um leikskólann og kynntu starfið sem þar fer fram. Að lokum var …

Kynningarfundur um skipulag

Kynningarfundur um nýja skipulagsuppdrætti verður haldinn í Ráðhúsinu í kvöld, 26. maí og hefst kl. 19. Þeir skipulagsuppdrættir sem kynntir verða eru : Húsafell, Stuttárbotnar – nýtt deiliskipulag Fögrubrekku 1-3 í landi Dalsmynnis – nýtt deiliskipulag Deildartungu 1, Tunguskjól og Utandeild – nýtt deiliskipulag Hraunsnef- Aðalskipulagsbreyting, lýsing Skipulags – og byggingarfulltrúi

Upplýsingar um söguleg flóð í Hvítá

Veðurstofan leitar eftir upplýsingum um söguleg flóð í Hvítá Veðurstofan er að vinna að hættumati í Hvítá. Hluti af því verkefni er að safna öllum tiltækum upplýsingum um söguleg flóð í Hvítá og þverám hennar. Veðurstofan telur afar mikilvægt að yfirstandandi gagnasöfnun byggist eins og kostur er á upplýsingum sem aflað var á vettvangi og af því fólki sem kunnugt …

Hreinsunarátak í dreifbýli

Líkt og undanfarin ár stendur sveitarfélagið fyrir hreinsunarátaki í dreifbýli í tvær vikur, frá 1.- 15. júní. Settir verða gámar fyrir timburúrgang annars vegar og málmúrgang hins vegar við eftirtalda staði: Bæjarsveit, Grímsstaði, Högnastaði, Brúarás, Lindartungu, Lyngbrekku, Hvanneyri, Kleppjárnsreyki, Síðumúla og Brautartungu. Vinsamlegast athugið að ekki er ætlast til að gámarnir séu notaðir fyrir aðra úrgangsflokka. Þegar gámar fyllast væri …

Hreinsun rotþróa

Hreinsun rotþróa sumarið 2016 er hafin og sér fyrirtækið Holræsa- og stífluþjónusta Suðurlands um verkið.  Þau svæði sem á að taka þetta árið eru   Norðurárdalur, Hvítársíða og Þverárhlíð.  Til þess að auðvelda hreinsunina þurfa húseigendur að tryggja óheft aðgengi , sjá til þess að hlið séu ólæst svo og merkja staðsetningu rotþróar. Hægt er að sjá  nánari upplýsingar inn á …

Íbúagáttin

Nú er hægt að fylla út, og senda, flestar umsóknir til Borgarbyggðar rafrænt úr íbúagáttinni en aðgengi að henni er að finna neðst hægra megin á forsíðunni og einnig opnast hún þegar valið er umsóknareyðublað. Til þess að tengjast íbúagáttinni þarf annað hvort rafræn skilríki eða s.k. Íslykil. Um hann er sótt til Þjóðskrár. Þegar umókn hefur borist Borgarbyggð fá umsækjendur sendan staðfestingarpóst …

Frá Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi – lokun

Vegna framkvæmda er óhjákvæmilegt annað en loka andyri og klefum uppi í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi  vikuna 23.-27.maí 2016. Eru notendur beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem af kunna að hljótast.

Skipulagsauglýsingar – 2016-05-19

Á síðasta fundi sveitarstjórnar voru samþykkt til auglýsingar þrjú ný deiliskipulög og ein breyting á aðalskipulagi. Þetta eru deiliskipulög fyrir Deildartungu 1, Tunguskjól og Utandeild, Fögrubrekku 1-3 í landi Dalsmynnis og Húsafell, Stuttárbotnar. Eins er í auglýsingu Hraunsnef- Aðalskipulagsbreyting, lýsing. Gögn vegna þessara skipulaga er að finna undir „stjórnsýsla – skipulagsmál – skipulagsauglýsingar“ Kynningarfundur fyrir þessi skipulög verður haldinn milli …