Tilkynning Rafmagnslaust verður á morgun föstudaginn 30 sept kl: 09.30 til 11.00 í Reykholti Borgarbyggð vegna vinnu við dreifikerfið. Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af þessu stafa. Bilanasími 5289390
Tilsjón á heimili
Við leitum að aðila sem er tilbúinn til að vera stuðningur við barnafjölskyldur inni á heimilinu nokkra klukkutíma á viku. Starfið felst í leiðbeiningum og aðstoð við skipulag heimilishalds og umönnun barna. Æskilegt að umsækjandi hafi menntun og/eða reynslu af vinnu með börnum og fjölskyldum. Nánari upplýsingar hjá starfsmönnum barnaverndar: Freyju Smáradóttur, Ingu Vildísi Bjarnadóttur og Hjördísi Hjartardóttur. Sími: 4337100. …
Samningur um hönnun og kostnaðargreiningu á lagningu á ljósleiðara í Borgarbyggð.
Á föstudaginn var gengið frá samningi við Snerru ehf um frumhönnun og kostnaðargreiningu á lagningu ljósleiðara hér í Borgarbyggð. Hér er um að ræða fyrstu skref í átt að ljósleiðaravæðingu alls sveitarfélagsins en vonir stands til þess að verkefnið komist á framkvæmdastig hið fyrsta. Guðmundur Daníelsson eigandi Snerru ehf hefur komið að hönnun kerfa fyrir fjölmörg sveitarfélög og væntir Borgarbyggð …
Köttur í óskilum 2016-09-22
Gulur og hvítur högni er í haldi gæludýraeftirlitsmanns. Hann fannst við Syðstu-Fossa og er ómerktur og ekki með örmerki. Þeir sem þekkja til kattarins eru beðnir að snúa sér til gæludýraeftirlits, sími 892-5044
Alþingiskosningar 2016
Nú er ljóst að kosið verður til Alþingis þann 29. október 2016. Viðmiðunardagur kjörskrár er fimm vikur fyrir kjördag og þurfa því allar breytingar á lögheimili að vera skráðar fyrir lok dags þann 23. september n.k. en kjördeildarkerfinu verður lokað sama dag. Þær lögheimilisbreytingar sem berast eftir viðmiðunardag fara ekki inn á kjörskrárstofn. (úr bréfi Þjóðskrár 21.9.) Mynd GJ.
Heitavatnsleysi
Lokað verður fyrir heita vatnið í Borgarnesi á morgun, 22. sept. milli kl. 05 – 13. Lokunin á við Kveldúlfsgötu og allt svæðið fyrir neðan Vegagerðina.
Lokun sundlaugar
Vegna skorts á heitu vatni verður sundlaugin í Borgarnesi lokuð til kl. 11 á morgun, fimmtudag, en þá verður heita vatnið komið á þar.
Andabær – laus störf
Leikskólinn Andabær, Hvanneyri – Leikskólakennarar – Deildarstjóri Heilsuleikskólinn Andabær, Hvanneyri auglýsir eftir leikskólakennurum. Um er að ræða 100% stöðu og 70% stöðu. Einnig auglýsum við eftir leikskólakennara í 100% stöðu til að leysa af tímabundið starf deildarstjóra. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum. Helstu verkefni og ábyrgð deildarstjóra: Meginverkefni: Vinnur samkvæmt …
80 ár frá sjóslysi
Eins og fram hefur komið hér eru um þessar mundir liðin 80 ár frá því að franska rannsóknaskipið Pourquoi pas strandaði við Straumfjörð með þeim afleiðingum að fjörutíu manns létust. Varð þessi hörmulegi atburður mörgum minnisstæður og vakti mikla samúð Íslendinga með frönsku þjóðinni. Aðeins einn áhafnarmeðlimur komst lífs af, stýrimaðurinn E. Gonidec. Var honum bjargað af Kristjáni Þórólfssyni, fóstursyni …
Hlutverk foreldra í læsi barna
Hlutverk foreldra í læsi barna Stutt námskeið fyrir foreldra og kennara Þriðjudaginn 4. október kl.16.30 – 18.30 Haldið í húsnæði Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands Farið verður stuttlega yfir einfaldar leiðir til að efla lestraráhuga, lesskilning og lestrarfærni barna á öllum aldri. Sýnd verða myndbönd og gefin dæmi um hvernig setja má upp einfalda leiki sem örva lestur heima. Leiðbeinandi: Ásta Björk Björnsdóttir, …









