SVEITARSTJÓRN BORGARBYGGÐAR FUNDARBOÐ FUNDUR Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Borgarbyggðar fimmtudaginn 8. mars 2018 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og hefst kl. 16:00. DAGSKRÁ Skýrsla sveitarstjóra. Fundargerð sveitarstjórnar 8.2 (166) Fundargerðir byggðarráðs 15.2., 22.2., 1.3. (442, 443, 444) Fundargerð fræðslunefndar 20.2. (166) Fundargerð velferðarnefndar 2.3. (81) Fjallskilanefnd Borgarbyggðar 5.3 …
Bjargsland II – breyting aðalskipulags, lýsing
Skipulagsauglýsing Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur á 166. fundi sínum þann 8. febrúar 2018, samþykkt að auglýsa eftirfarandi skipulagslýsingu: Bjargsland II í Borgarnesi – Lýsing á breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022. Gera þarf breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi fyrir Bjargsland II, í Borgarnesi, sem samþykkt var í sveitarstjórn Borgarbyggðar 30. nóvember 2006 og auglýst í …
Frístundaleiðbeinandi í Borgarnesi
Frístund í Borgarnesi óskar eftir frístundarleiðbeinanda. Markhópur frístundar eru börn í 1.-4. bekk og er frístund starfrækt eftir hefðbundinn skóladag hjá börnunum. Í boði er hlutastarf þar sem unnið er virka daga frá 13:15-15:30. Hæfniskröfur: Reynsla af vinnu með börnum æskileg Góð færni í mannlegum samskipum Sjálfstæð vinnubrögð Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð. Viðkomandi þarf að geta …
Farsæl efri ár í Borgarbyggð
Samráðsfundir um framtíðarstefnu Borgarbyggðar í málefnum aldraðra voru haldnir í félagsstarfi aldraðra að Borgarbraut 65a og í félagsheimilinu Brún. Voru fundirnir haldnir í samstarfi Eldri borgara ráðs, Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum, Félags eldri borgara í Borgarnesi og nágrenni og Velferðarnefndar Borgarbyggðar. Markmið samráðsfundanna var að leita svara við því hvernig stuðla megi að farsælum efri árum íbúa Borgarbyggðar. Góð mæting …
Leikskólakennari við Andabæ, Hvanneyri
Leikskólinn Andabær, Hvanneyri Leikskólinn Andabær, Hvanneyri auglýsir eftir leikskólakennara. Um er að ræða 100% stöðu á elstu deild leikskólans. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum. Helstu verkefni og ábyrgð leikskólakennara: Meginverkefni: Vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna. Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn …
Engiferskot í sundlauginni í Borgarnesi
Engiferskot í sundlauginni í Borgarnesi Sundlaugin í Borgarnesi býður nú gestum sínum engiferskot. Ávinningur þess að taka inn engiferrót eru margir en hún hefur meðal annars góð áhrif á meltinguna, vinnur á bólgum og eykur blóðflæðið í líkamanum. Þar sem ég æfi mikið og stunda lyftingar þá er ekki óalgengt að upplifa vöðvabólgu eða verki í vöðvum/liðum og vinnur engiferrótin …
Sumarstörf við sundlaugar Borgarbyggðar
Starfsfólk óskast við sundlaugina: í Borgarnesi frá 30. maí til 31. ágúst. á Kleppjárnsreykjum frá 2. júní til 19. ágúst. á Varmalandi frá 2. júní til 19. ágúst. Helstu verkefni: Öryggisgæsla. Afgreiðslustörf. Aðstoð við viðskiptavini. Þrif. Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri. Standast hæfnispróf sundstaða. Með góða þjónustulund. Vinnufyrirkomulag: 100% starf sem unnið er í vaktavinnu. Unnið …
Egla tekur til hendinni
Egla tekur til hendinni varð til á síðasta ári þegar Borgarbyggð hóf hvatningarátak til að draga úr notkun á einnota burðarplastpokum í verslunum sem hefur gengið mjög vel. „Egla“ hefur nú heimsótt flestar stofnanir Borgarbyggðar til að skoða möguleika á að draga úr notkun á einnota plastpokum í daglegum rekstri. Eins og búast mátti við eru stjórnendur og starfsfólk allra …
Sorphirða og ófærð
Sorphirða gengur afar hægt vegna veðurs og færðar. Unnið er að hirðu á almennu sorpi í minni þéttbýliskjörnum þriðjudaginn 13. febrúar og ekki liggur fyrir hvenær því verður lokið. Í kjölfarið er græna tunnan hirt í Borgarnesi. Íbúar eru hvattir til að moka snjó frá ílátum og úr innkeyrslum til að auðvelda starfsfólki sorphirðunnar sín störf.
Snjómokstur
Unnið er að snjómokstri eins og fært er eftir illviðri helgarinnar og töluverða snjókomu nú í nótt. Forráðamenn bíla og annarra ökutækja í þéttbýlinu eru vinsamlegast beðnir um að taka tillit til þessa ástands þegar bílum er lagt. Með tillitssemi og samvinnu alllra þá gengur hreinsunarstarf greiðlegar fyrir sig öllum til hagsbóta. Snjómokstursfulltrúar kalla verktaka til verka úti í héraðinu …







