Fyrir nokkru tóku tveir frumkvöðlar í Borgarnesi sig til og efndu til uppákomu sem nefndist Föstudagurinn dimmi. Þetta voru þær Eva Hlín Alfreðsdóttir og Heiður Hörn Hjartardóttir. Á þessum degi hvetja þær til umhugsunar og upplifunar í ljósleysi skammdegisins, þar sem hugsað er til eldri tíma þegar fólk bjó ekki við rafmagn. Safnahús tekur þátt í Dimma föstudeginum í dag …
Fjölbreytt verkefni á skipulagsdegi skóla
Í skólum Borgarbyggðar voru unnin fjölbreytt verkefni á skipulagdegi þann 16. janúar sl. Ebba Guðný Guðmundsdóttir hélt námskeið fyrir matráða leikskóla og grunnskóla og aðstoðarmenn þeirra og fjallaði um ofnæmi og óþol hjá börnum á leik- og grunnskólaaldri. Eldaðir voru m.a. grænmetisréttir og rætt um næringarinnihald matar. Persónuverndarfulltrúi Borgarbyggðar fræddi starfsfólk Grunnskóla Borgarfjarðar um vinnslu persónuupplýsinga og geymslu í ljósi …
Góð þátttaka á fyrirlestri um markmiðasetningu
Góð þátttaka var á fyrirlestri Elísabetar Margeirsdóttur um markmiðasetningu. Elísabet er ofurhlaupari og næringarfræðingur að mennt. Fjallaði hún um mikilvægi þess að setja sér raunhæf markmið í næringu og hreyfingu á nýju ári. Einnig að finna það sem maður hefur áhuga á og brennur fyrir, en það þurfi hver og einn að finna hjá sér. Elísabet hefur stundað hlaup í …
Miltisbrunagrafir í Borgarbyggð
Heimildir og nánari upplýsingar: Umfjöllun Bændablaðsins í janúar 2019.
Fallegt í Borgarnesi
„Ef ég hefði átt að lýsa Borgarnesi í byrjun 20. aldarinnar, hefði ég sagt, að það væri versti staður á Íslandi. Þar væri ljótt, sandur og berir klettar, alltaf vont veður, stormur og rigning, og þar lægju skólapiltar og kaupafólk í einni bendu uppi á einhverju stóru pakkhúslofti. En eftir að frú Helga fór að skjóta skjólshúsi yfir mig, uppgötvaði …
Verkefni á sviði byggingarfulltrúa
Dæmi um stór verkefni í byggingu eða langt komin: Borgarbraut 57-59 (íbúðarblokk, hótel og verslanir/skrifstofur) Hótelbygging í gamla húsmæðraskólanum á Varmalandi Stækkun á Hótel Reykholti • Stækkun á Hótel Hamri Stækkun og endurbætur á Grunnskólanum í Borgarnesi Nýtt verslunarhúsnæði við Digranesgötu 4 Stækkun …
Uppbyggingarsjóður Vesturlands – kynning
Ráðgjafar á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verða með kynningu á sjóðnum á næstu dögum þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar um gerð umsókna, styrkhæfni verkefna o.fl. Viðvera verður á eftirtöldum stöðum: Stykkishólmur mánudaginn 14 janúar kl.10.00-12.00 í ráðhúsinu í Stykkishólmi. Grundarfjörður mánudaginn 14 janúar kl.13.00-15.00 í ráðhúsinu í Grundarfirði. Ólafsvík mánudaginn 14 janúar kl.16.00-18.00 í Átthagastofu …
Markmið sett á nýju ári
Sem lið í heilsueflandi samfélagi hvetur Borgarbyggð íbúa til að hefja nýtt ár með fyrirheitum um heilsusamlegt líferni. Fimmtudaginn 10. janúar 2019 kl. 20:00 mun Elísabet Margeirsdóttir ofurhlaupari og næringarfræðingur flytja fyrirlestur í Hjálmakletti um að setja sér raunhæf markmið í næringu og hreyfingu á nýju ári. Elísabet hefur stundað hlaup í rúman áratug og lokið fjölmörgum maraþonum og lengri …
Laus lóð – Berugata 1-3
Borgarbyggð auglýsir lausa til umsóknar nýstofnaða lóð við Berugötu í Borgarnesi, Berugötu 1-3, sem samþykkt var að stofna á fundi sveitarstjórnar þann 13. des. s.l. Um úthlutun hennar fer skv. reglum Borgarbyggðar um úthlutun lóða. Reglurnar er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins www.borgarbyggd.is ásamt uppdrætti af lóðinni (undir lausar lóðir) . Umsóknarfrestur er til 28. janúar 2019 og verður henni …
179. fundur sveitarstjórnar
SVEITARSTJÓRN BORGARBYGGÐAR FUNDARBOÐ 179. FUNDUR Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Borgarbyggðar fimmtudaginn 10. Janúar 2019 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og hefst kl. 16:00. DAGSKRÁ Skýrsla sveitarstjóra. Fundargerð sveitarstjórnar 13.12. (178) Fundargerðir byggðarráðs 20.12, 3.1. (474, 475) Fundargerð fræðslunefndar 20.12. (175) Fundargerð umhverfis – skipulags – og landb.n. 4.1. (72) …





