Á þessum tónleikum koma nemendur fram frá eftirtöldum tónlistarskólum: Tónlistarskóla Borgarfjarðar Tónlistarskólanum á Akranesi Auðarskóla í Dalasýslu Tónlistarskóla Ísafjarðar Tónlistarskóla Snæfellsbæjar Tónlistarskóla Stykkishólms Tónlistarskóla Vesturbyggðar Kynnir á tónleikunum verður sveitarstjórinn okkar Gunnlaugur A. Júlíusson Dagskráin er fjölbreytt og munu þrjú atriði af tónleikunum verða valin til þátttöku á lokahátíð Nótunnar sem verður í Hofi á Akureyri í byrjun apríl.
Bókun byggðarráðs v. Jöfnunarsjóðs
Framlögð bókun stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga vegna boðaðra skerðingar framlaga í Jöfnunarsjóð ásamt áætlun um áhrif á fjárhag sveitarfélaga. Einnig var framlögð áætlun hagsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga um líklegt tekjutap sveitarfélaga vegna áforma fjármálaráðuneytisins um frystingu framlag ríkisins til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árunum 2020 og 2021. Samtals henni mun tekjutap Borgarbyggðar vegna framkominna áætlana verða samtals rúmar 105 m.kr. Byggðarráð …
Umsögn um frumvarp til laga um fiskeldi
Byggðarráð samþykkti eftirfarandi ályktun á 483. fundi byggðarráðs Byggðarráð Borgarbyggðar hvetur Alþingi til að gera nauðsynlegar endurbætur á frumvarpi um breytingar á lögum um fiskeldi, sem það hefur nú til meðferðar, svo tryggt verði að lífsafkomu íbúa á þeim svæðum landsins, þar sem virði laxveiðiáa skiptir verulegu máli í viðhaldi búsetu og afkomu almennings, verði ekki ógnað. Á Vesturlandi nær …
Lífsgleði og velgengni eftir pöntun
Lífsgleði og velgengni eftir pöntun 20. MARS KL. 20:00 Í HJÁLMAKLETTI Máttur orða og hugsana er meiri en við gerum okkur grein fyrir! Enginn annar en við sjálf getur ráðið því hvað við segjum og hugsum. Okkar er því valið í hvaða átt við viljum beina athyglinni, í átt að kyrrstöðu og erfiðleikum eða góðum árangri, lífsgleði og velgengni. Bergþór …
Starf verkefnisstjóra í Safnahúsi
Starf verkefnisstjóra Safnahúsið hefur auglýst eftir umsóknum um starf verkefnisstjóra og óskast umsóknir sendar inn fyrir 4. apríl n.k. Verkefnisstjóri vinnur fjölbreytt störf s.s. við móttöku, flokkun og skráningu muna/skjala, rannsóknir og heimildaöflun. Hann annast eftirlit með safngripum, tiltektir, flutninga gripa/gagna o.fl. Einnig tilfallandi verkefni s.s. móttöku gesta, sýningavörslu og að einhverju leyti afgreiðslu á bókasafni. Er starfið auglýst til …
Ég á bara eitt líf
Forvarnafyrirlestrar á vegum minningarsjóðs Einars Darra verða haldnir í vikunni. Á þriðjudag 19.3. verður fyrirlestur fyrir starfsfólk skólans og foreldra. Fyrirlesturinn verður haldinn í 10. bekkjar stofunni og hefst kl. 20:00. Á miðvikudaginn kl. 8:30 verður fyrirlestur fyrir 9. og 10. bekk í 10. bekkjar stofu og kl. 9:30 fyrir 7. og 8. bekk í Mjólkursamlaginu. Með …
Lokun á Borgarbraut
Borgarbrautin er lokuð á móts við Borgarbraut 1-3 fram eftir degi í dag, mánudag, vegna framkvæmda. Eins verður Digranesgötunni lokað frá Arionbanka niður að Bónus miðvikudaginn 20. mars frá kl. 9:30 – 15.
Kynningar- og samráðsfundur Skipulagsstofnunar
Skipulagsstofnun stendur fyrir kynningar- og samráðsfundum um landið og eru allir sem áhuga hafa hvattir til að koma og kynna sér hvernig fyrirhugað er að standa að mótun landsskipulagsstefnu og taka þátt í umræðum um æskilegar áherslur og aðgerðir í landsskipulagsstefnu varðandi loftslagsmál, landslag og lýðheilsu. Haldinn verður kynningar- og samráðsfundur í Hjálmakletti Borgarnesi 18. mars kl. 15-17. Dagskrá fundar …
Frístund í Borgarnesi
Óskað er eftir frístundaleiðbeinanda í frístund í Borgarnesi Markhópur frístundar eru börn á aldrinum 6-9 ára. Í boði er hlutastarf þar sem vinnutíminn er frá kl. 13:00-16:00, þriðjudaga og miðvikudaga. Helstu verkefni og ábyrgð: Leiðbeina börnum í leik og starfi Skipulagning á faglegu frístundastarfi Samvinna við börn og starfsfólk Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma …
Stöðuleyfi – fréttaskot
Byggingarfulltrúa berast reglulega fyrirspurnir frá aðilum sem íhuga að setja tímabundið niður gáma eða aðra lausafjármuni utan skipulagðra gámasvæða. Sækja þarf um stöðuleyfi til byggingarfulltrúa til að láta eftirfarandi lausafjármuni standa lengur en tvo mánuði utan slíkra svæða: a. Hjólhýsi, á tímabilinu frá 1. október til 1. maí. b. Gáma, báta, torgsöluhús, frístundahús í smíðum (ætlað er til flutnings) og …








