Hátíðarhöld á 17. júní í Borgarbyggð eru með breyttu sniði í ár vegna COVID-19 veirunnar. Gætt verður að fjöldatakmörkunum sem eru nú 200 manns og farið eftir tilmælum er varðar fjarlægðarmörk. Íbúar eru hvattir til að gera sér glaðan dag og setja upp sína eigin þjóðhátíð með vinum og ættingjum.
Áskorun til kattaeigenda
Um þessar mundir eru ungar að klekjast úr eggjum hinna ýmsu fuglategunda. Fuglavinum svíður því sárt að sjá heimilisketti éta ófleyga unga og er því enn minnt á ábyrgð kattaeigenda og þess vænst að þeir taki þeim tilmælum sem birtast í samþykkt um hunda- og kattahald í Borgarbyggð og einnig í stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Friðlandið í Andakíl.
Slökkviliðsmenn Borgarbyggðar á námskeiði
Slökkviliðsmenn Borgarbyggðar hafa undanfarnar vikur setið námskeið á vegum Brunamálaskólans. Til að öðlast löggildingu í faginu þurfa slökkviliðsmenn að sitja samtals fjögur námskeið þar sem farið er markvisst yfir alla þætti starfsins.
Unnið að rannsókn á áhrifum Covid-19 faraldursins á leikskólastarf
Kristín Gísladóttir leikskólastjóri Ugluklettar hlaut styrk úr Rannsóknarsjóði Kennarasambands Íslands að upphæð kr. 700.000 til að vinna að lokaverkefni sínu í forystu og stjórnun við Háskólann á Bifröst.
Öndvegisstyrkir uppbyggingarsjóðs Vesturlands
Uppbyggingarsjóður Vesturlands auglýsir eftir góðum viðskiptahugmyndum
Blómaganga í Einkunnum sunnudaginn 14. júní.
Í tilefni af degi hinna villtu blóma býður landvörður Umhverfisstofnunar á Vesturlandi upp á blómagöngu í Einkunnum, sunnudaginn 14. júní kl. 13:00. Landvörður tekur á móti gestum á bílastæðinu og verður
Laust starf skólaliða í Grunnskólanum í Borgarnesi
Starf skólaliða í Grunnskólanum í Borgarnesi er laust til umsóknar. Um er að ræða 100% starf sem unnið er á dagvinnutíma.
Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið þann 13. júní 2020.
Kvennahlaup ÍSÍ 2020 fer fram 13. júní, 30 árum eftir að fyrsta kvennahlaupið var haldið.
Ráðstefna um samstarf safna á Vesturlandi
Samtök sveitarfélaga á vesturlandi halda vefráðstefnu um aukið samstarf safna á Vesturlandi. Ráðstefnan hefst á fræðsluerindum um safnastarf og starf safna á landsbyggðinni, en seinni hluti ráðstefnunnar er málþing safnafólks, starfsmenn menningarverkefna sveitarfélaganna og nefndarmenn menningarmálanefnda á Vesturlandi.
199. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar
199. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar verður haldinn í Hjálmakletti, 11. júní 2020 og hefst kl. 16:00









