Opinn íbúafundur um málefni íþróttastarfs, heilsueflingar og almennrar lýðheilsu í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps verður haldinn í grunnskólanum í Borgarnesi þriðjudaginn 5. maí kl 20:00. Öll framboð til sveitarstjórnar í þessu sameinaða sveitarfélagi hafa boðað komu sína og mun forystufólk þeirra taka þátt í pallborðsumræðum um þessi mál.
Ef þú hefur áhuga á íþróttastarfi barna og fullorðinna á svæðinu, hefur skoðun á opnunartímum sundlauga, lagningu göngustíga, umhirðu útivistarsvæða í eigu sveitarfélaganna tveggja, sem nú eru að sameinast, eða einhverju öðru sem tengist yfirskrift fundarins hvetjum við þig eindregið til að mæta og taka þátt í samtalinu.
Elvis messa á sumardaginn fyrsta
Haldið þið að það verði ekki huggulegt að koma í kirkjuna á sumardaginn fyrsta kl 18:00 ❤ ❤
Hlusta á þekkta slagara og ljúflingslög sem Elvis Presley gerði fræg! Kirkjukórinn okkar er búinn að vera að æfa þetta skemmtilega prógramm undir stjórn Jónínu Ernu og ég hlakka til að hlusta!
Kannski segir presturinn eitthvað gáfulegt, það er ekki víst samt – en það verður lesið úr ritningunni, farið með bænir.. og mikilvægast af öllu, við fáum að koma saman í einlægni og mildi, og óska hvert öðru gleðilegs sumars!
Við sjáumst vonandi í kirkjunni okkar á fimmtudaginn kl 18:00
Afmælishátíð Freyjukórsins
Freyjukórinn í Borgarfirði heldur uppá 35 ára starfsafmæli sitt í Logalandi síðasta vetrardag 22. apríl kl. 20.00 aðgangseyrir 4000.- söngur, grín, myndir úr starfi kórsins og léttar veitingar. Allir velkomnir sérstaklega þó fyrri kórfélagar.
ARKIR – Brotabrot : Sýningaropnun
Sýngaropnun í Safnahúsi Borgarfjarðar á verkum listahópsins ARKIR
Samskipti lögreglu og minnihlutahópa
Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvernig vaxandi neikvæð samfélagsumræða um minnihlutahópa getur haft áhrif á viðhorf, traust og samskipti milli lögreglu og minnihlutahópa.
Borðspilakvöld.
Borðspilakvöld !
Páskafjör í Safnahúsinu
Páskaföndur fyrir fjölskylduna
Páskaspil Brúarási FRESTAÐ
Félagsvistinni sem átti að vera í Brúarási í kvöld er frestað vegna veðurútlits. Ný tímasetning verður auglýst síðar.
Prjónað á íslensku – Knitting in Icelandic
Viltu æfa þig í íslensku á meðan að þú prjónar? Þetta námskeið sameinar íslenskunám, handverk og félagslega samveru.
Would you like to practice Icelandic while knitting? This course combines Icelandic language learning, handicrafts, and social interaction.







