
Borgarbyggð auglýsir eftir tilboðum í hýsingu og rekstur upplýsingatækniumhverfis sveitarfélagsins, auk notendaþjónustu. Útboðið verður opnað fimmtudaginn 26. febrúar 2026 kl. 12:00.
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænum útboðsvef Borgarbyggðar hjá Ajour og verða ekki afhent í útprentuðu formi. Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti í gegnum útboðsvef Borgarbyggðar.
Frestur til að skila inn tilboðum er til kl. 12:00 mánudaginn 30. mars 2026.
Vakin er athygli á því að dagsetningar hafa hliðrast til í útboðsgögnum. Skilafrestur er sem áður segir til kl. 12.00 þann 30.03.2026 og opnun tilboða verða kl. 13.00 þann 30.03.2026.
Útboðsgögn má nálgast hér á útboðsvef Borgarbyggðar