Ungt fólk mótar framtíðarsýn í Borgarbyggð

mars 13, 2026
Featured image for “Ungt fólk mótar framtíðarsýn í Borgarbyggð”

Þann 10. mars síðastliðinn fór fram sveitarstjórnarfundur unga fólksins í Borgarbyggð. Fundurinn er haldinn með svipuðu sniði og hefðbundinn sveitarstjórnarfundur þar sem fulltrúar í Ungmennaráði Borgarbyggðar taka þátt ásamt kjörnum sveitarstjórnarfulltrúum.

Á fundinum kynntu ungmennin helstu áherslumál ungmennaráðs og ræddu þau við sveitarstjórn. Erindi fulltrúa ungmennaráðs voru fjölbreytt og snertu meðal annars forvarnir, íþrótta- og tómstundamál, skólastarf og geðheilsu ungmenna í sveitarfélaginu.
Fulltrúar ungmennaráðs sem fluttu erindi voru þau Freyja Ísfold Guðmundardóttir sem fjallaði um forvarnir í Borgarbyggð, Ernir Daði Arnberg Sigurðsson sem ræddi annars vegar um íþróttir og tómstundir og hins vegar um mótun ungmennastefnu fyrir sveitarfélagið, Hrafnhildur Ósk Orradóttir sem fjallaði um skólastarf í Borgarbyggð og Marta Lukka Magnúsdóttir sem ræddi um geðheilsu og vellíðan ungmenna.

Þrjár tillögur voru lagðar fram á fundinum og samþykktar samhljóða. Sú fyrsta felur í sér að mótuð verði sérstök ungmennastefna fyrir Borgarbyggð árin 2026–2031. Sveitarstjórn tók undir tillöguna og vísaði málinu til fræðslunefndar sem mun vinna að útfærslu hennar í samvinnu við ungmennaráð.

Önnur tillagan sneri að því að efla jafningjafræðslu meðal ungmenna í Borgarbyggð. Markmið verkefnisins er að styrkja ungmenni, bæta andlega líðan og vinna gegn einelti. Sveitarstjórn samþykkti að fela fræðslunefnd að kanna tækifæri til að þróa slíkt verkefni.

Þriðja tillagan kom frá forseta sveitarstjórnar og felur í sér að ungmennaráði verði falið að útbúa minnisblað með tillögum að áherslum og forgangsröðun verkefna í forvarnarfræðslu fyrir börn og ungmenni næstu fjögur árin. Tillagan var einnig samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórnarfundur unga fólksins er mikilvægur vettvangur þar sem raddir ungs fólks fá að heyrast og þar er lagður grunnur að frekari vinnu við málefni barna og ungmenna í Borgarbyggð fyrir komandi ár.

Hægt er að horfa á upptöku frá fundinum hér.


Share: