
Spáð er snjókomu á suðvestanverðu landinu í dag og ef veðurspá gengur eftir má búast við að veðrið gæti haft áhrif á íbúa í Borgarbyggð eftir hádegi. Snjókoma gengur yfir svæðið og þar sem hún verður mest má búast við blindu í skafrenningi og talsverðri ofankomu.
Sérstaklega er bent á að hríðarveður geti myndast á hringveginum norður af Hvalfirði á milli kl. 14 og 19. Þeir sem eiga leið um fjallvegi eða milli byggðarlaga innan sveitarfélagsins eru hvattir til að fylgjast vel með færð og veðurspám áður en lagt er af stað.