Reisugildi fjölnota íþróttahúss í Borgarbyggð

október 31, 2025
Featured image for “Reisugildi fjölnota íþróttahúss í Borgarbyggð”

Fimmtudaginn 6. nóvember nk. verður haldið reisugildi við nýja fjölnota íþróttahúsið í Borgarbyggð, í tilefni þess að búið sé að loka húsinu.
Hvetjum við öll til að mæta og skoða svæðið, boðið er upp á veitingar og léttar íþróttastöðvar þar sem hægt verður að sýna takta sína.

Framkvæmdir við húsið hófust formlega með skóflustungu þann 20. mars síðastliðin en með þessum áfanga má segja að verkið gangi vel og samkvæmt áætlun, en stefnt er að verklokum í ágúst 2026.

Nú er allt stálvirki komið upp, steypuvinnu við bygginguna lokið og verið að klára að einangra og loka þakinu. Framvinda verksins hefur verið mjög góð og rík ástæða til að gleðjast yfir þeirri samvinnu sem hefur átt sér stað við að reisa þetta mikla mannvirki. Það er sannarlega ánægjulegt að sjá hugmynd um glæsilega íþróttaaðstöðu smám saman verða að veruleika.

Reisugildi er gjarnan haldið þegar síðustu þaksperrur hússins hafa verið reistar og markar það lok burðarvirkjagerðar, sem er einn af mikilvægustu áföngum í byggingarframkvæmdum.
Þessi hefð þekkist á Íslandi og er tákn þakklætis og virðingar fyrir því mikla starfi sem verktakar, hönnuðir og aðrir að verkinu standa hafa lagt í.

Rétt er að taka fram að verið er að bjóða inn á vinnusvæði og því mikilvægt að fara varlega.


Share: