
Jólahús Borgarbyggðar 2025 er Garðavík 9 í Borgarnesi. Það er niðurstaða jólaleiks sem stóð yfir á heimasíðu Borgarbyggðar í desember. Þar búa hjónin Dóra Gísladóttir og Jakob Guðmundsson, en húsið þeirra, gluggar og garðurinn er fagurlega skreytt af miklum metnaði. Sjón er sögu ríkari og sannarlega þess virði að líta á húsið og garðinn í Garðavík.
Við óskum þeim innilega til hamingju og færum þeim þakkir fyrir að lýsa upp skammdegið og auka jólaandann með ljósum og litaýrð.
Þá var einnig tilnefnd jólalegasta gatan í sveitarfélaginu og þar fékk Kveldúlfsagata í Borgarnesi flest atkvæði. Það er verðskulduð viðurkenning og færum við íbúum við götuna bestu þakkir og hamingjuóskir fyrir smekklegheit, litagleði og metnað ár eftir ár.
Fjölmargar tilnefningar bárust en samtals voru 15 jólahús tilnefnd. Borgarbyggð þakkar öllum þeim sem sendu inn ábendingar sem og þeim sem skreyta húsin sín í aðdragana jóla.