Það voru nemendur úr grunnskólum Borgarbyggðar sem prýddu þrjú efstu sætin í Stóru upplestrarkeppninni fyrir Borgarfjörð og Dali sem haldin var nýverið. Þessir nemendur eru eftirtalin: Klara Sveinbjörnsdóttir frá Grunnskóla Borgarfjarðar (fyrsta sæti), Auður Eiðsdóttir frá Varmalandsskóla (annað sæti) og Alexander Gabríel Guðfinnsson frá Grunnskólanum í Borgarnesi (þriðja sæti). Í Stóru upplestrarkeppninni kepptu nemendur 7. bekkja frá Grunnskólanum í Búðardal, …
Kaffileikhús í Logalandi
Um síðastliðna helgi opnaði Ungmennafélag Reykdæla kaffileikhús sitt í Logalandi. Á dagskrá eru tveir einþáttungar, ,,Flugfreyjuþáttur” og ,,Er það ég” eftir Kristínu Gestsdóttur, nokkur sönglög úr smiðju Magnúsar Eiríkssonar og rúsínan í pylsuendanum er svo leikritið ,,Nú fljúga hvítu englarnir” eftir Örnólf Guðmundsson ráðsmann í Reykholti. Leikritið segir frá fullorðnum sveitapresti, nokkuð ölkærum, og samskiptum hans við sóknarbörn sín, …
Starfsmaður óskast í Félagsmiðstöðina Óðal
Félagsmiðstöðin Óðal í Borgarnesi óskar eftir starfsmanni í fullt starf. Leitað er að konu í starfið þar sem fyrir er einn karlkyns starfsmaður. Æskilegt er að umsækjendur hafi háskólamenntun á sviði uppeldis og/eða tómstundafræða. Starfið er hefðbundið félagsmiðstöðvarstarf auk þess sem starfsmaður þessi er verkefnastjóri vímuvarna- og forvarnarmála sveitarfélagsins og vinnur því með starfsmönnum annarra félagsmiðstöðva, félagsstarfskennurum og stjórnum …
Breytingar á álagningu fasteignagjalda
Við álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð var, eins og í öðrum sveitarfélögum, notað nýtt tölvukerfi frá Fasteignamati ríkisins. Þetta kerfi á einnig að halda utan um allar breytingar sem þarf að gera á álagningunni. Nokkuð er um að greiðendur hafi bent starfsmönnum Borgarbyggðar á villur í álagningunni, sem verða leiðréttar í þeim tilfellum sem ábendingarnar eru réttar. Þar sem áðurnefnt tölvukerfi …
Skipulag byggðar í Brákarey – tillögur skipulagshönnuða lagðar fram og kynntar !
Í lok síðasta árs var farið af stað með að kanna áhuga nokkurra teikni- og arkitektastofa á þátttöku í hugmyndavinnu um skipulag byggðar í Brákarey. Í framhaldi lá fyrir að fjórar stofur tækju þátt í verkefninu, enda um spennandi og krefjandi skipulagsverkefni að ræða. Eftir að hafa fengið í hendur ýmis gögn um verkefnið, hófust þessar stofur handa í …
Mjallhvít og dvergarnir sjö
Nemendur Tónlistarskóla Borgarfjarðar eru nú að æfa söngleikinn Mjallhvít og dvergarnir sjö. Söngleikurinn er byggður á teiknimynd Walt Disneys við tónlist Franks Churchill. Nemendurnir sem koma fram í sýningunni eru á aldrinum 7-12 ára. Um tónlistar- og leikstjórn sér Theodóra Þorsteinsdóttir og við flygilinn er Birna Þorsteinsdóttir. Frumsýning verður föstudaginn 16, mars kl. 18:00. Önnur sýning verður laugardaginn 17. mars …
Laust starf við ræstingar
Auglýst er laust starf við ræstingar í leikskólanum Klettaborg, Mávakletti 14. Starfið felst í ræstingum eftir lokun leikskólans alla virka daga. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og er ráðning tímabundið til 12. júlí 2007. Laun eru samkvæmt kjarasamingi Launanefndar sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Borgarbyggðar. Umsóknarfrestur er til 20. mars 2007. Nánari upplýsingar veita Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri og Guðbjörg …
Varmaland og Bifröst – breytt opnun
Í ljósi reynslunnar hefur verið tekin ákvörðun um að breyta opnunardögum og opnunartímum í Félagsmiðstöðinni Hosiló á Varmalandi. Til að koma til móts við þarfir unglinga á Bifröst hefur einnig verið komið á kvöldopnun í Gauknum, aðstöðu unglinga þar. Allir unglingar í Hosiló eru hvattir til að nota félagsmiðstöðina bæði þegar opið er á daginn í Þinghamri og á kvöldin …
Leiksýningar í Lyngbrekku
Í dag, Föstudaginn 9.mars, frumsýnir Leikdeild UMF Skallagríms í Borgarnesi gamanleikritið ,,Sex í Sveit“ í Félagsheimilinu Lyngbrekku. Alls taka sex leikarar þátt í sýningunni og leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Leikdeild Skallagríms hefur verið á miklum hrakhólum undanfarin 7 ár og hrakist milli gamalla iðnaðarhúsa í Borgarnesi. Sökum þess hefur ekki verið tækifæri á að setja upp leikrit jafn títt …
Margmenning – félag áhugafólks
– Látum okkur líða vel saman í Borgarbyggð! Sunnudaginn 11. mars kl 17:00ATH, breytt staðsetning -Matstofan (Dússabar) Brákarbraut 3, BorgarnesPáll S. Brynjarsson, sveitarstjóri Borgarbyggðar.Páll ræðir hlutverk sitt sem sveitarstjóri og þróun sveitarfélagsins undanfarin ár. Hann svarar fyrirspurnum.Allir velkomnir! Sunday 11th March at 5:00 PMNOTE, new place -Matstofan (Dússabar) Brákarbraut 3, Borgarnes> Páll S. Brynjarsson, Mayor of Borgarbyggð.Páll speaks of …