Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Ytri-Skeljabrekku skv. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga. Breytingin er í því fólgin að lóðin Varmabrekka 2 er stækkuð úr 3210m² í 7043m², byggingarreitur er færður til á lóð. Einnig er gerð breyting á J lið í skilmálum gildandi deiliskipulags. Deiliskipulagstillagan verður til sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðar að …
Sprengingar vegna lagnavinnu í Borgarnesi
Frá og með föstudeginum 26. sept. verður unnið við sprengingar vegna lagnavinnu frá Borgarbraut og niður með húsi Vírnets hf. í átt til sjávar. Ætla má að verkið taki innan við tvær vikur. Fyrir sprengingar verða gefin hljóðmerki og aftur að sprengingu lokinni. Titrings kann að verða vart vegna sprenginganna í næsta nágrenni. Ef þú hefur einhverjar ábendingar vinsamlegast hafðu …
Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar 2008
Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar verða veittar á Sauðamessu laugardaginn 4. október í Skallgrímsgarði. Í ár verða veittar viðurkenningar fyrir myndarlegasta býlið, snyrtilegustu lóð við íbúðarhúsnæði, snyrtilegustu lóð við atvinnuhúsnæði og auka viðurkenning frá umhverfis- og landbúnaðarnefnd. Hér má sjá viðurkenningar síðustu tveggja ára á heimasíðu Borgarbyggðar.
Náttúrustofuþing
Náttúrustofur á Íslandi eru sjö. Til að auka samvinnu milli þeirra voru stofnuð Samtök náttúrustofa (SNS) árið 2002. Undir merkjum þeirra samtaka hafa verið haldin árlega Náttúrustofuþing. Náttúrustofuþingið í ár er hér á Vesturlandi á morgun, föstudaginn 26. september, í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði kl. 14:00 – 18:15. Sjá má dagskrá Náttúrustofuþings á heimasíðu Náttúrustofu Vesturlands.
Möguleikar Vesturlands til þátttöku í svæðasamstarfi í Evrópu
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Vaxtasamningur Vesturlands standa fyrir fundarröð víðsvegar á Vesturlandi um möguleika Vesturlands til þátttöku í svæðasamstarfi í Evrópu. Sjá hér auglýsingu um fundina.
Ærleg skemmtun fyrir sauðsvartan almúgann
Sauðamessa 2008 Í og við Skallagrímsgarð Borgarnesi 4. október Ærleg skemmtun fyrir sauðsvartan almúgann!!! Sauðamessa er stórhátíð tileinkuð sauðkindinni og sauðnum í okkur sjálfum haldin af áhugamönnum um almennan sauðshátt. Hátíðin er haldin í og við Skallagrímsgarð í Borgarnesi og hefst klukkan 13.30 að staðartíma með fjárrekstri. Þá verður um tvöhundruð fjár rekið í gegnum af sjálfskipuðum rekstrarfræðingum eftir aðalgötunni …
Kynningarfundur – atvinnumál kvenna
Kynningarfundur um styrki til atvinnumála kvenna verður haldinn í Borgarnesi 23.september nk. Auk kynningar á styrkjum verða erindi frá frumkvöðlakonu, frá sérfræðingi á Byggðastofnun auk þess sem Atvinnuráðgjöf Vesturlands mun kynna þjónustu sína við frumkvöðla. Fundurinn verður haldinn á Hótel Hamri og er frá kl 20:00 – 21:00. Nálgast má umsóknareyðublað ásamt nánari upplýsingum og er slóðin www.atvinnumalkvenna.is Dagskrá: …
,,Fleiri tré og blóm en heima“
Í dagblaðinu Hallands Nyheter er grein eftir Lenu Strömberg frá því 17. september síðastliðinn sem segir frá heimsókn nemenda frá Grunnskólanum í Borgarnesi til nemenda í bekk 9B í Tullbroskolan í Falkenberg, sem er vinarbær Borgarness í suður-Svíþjóð. Í upphafi greinarinnar er greint frá því að íslensku nemendunum hafi þótt vera fleiri tré og blóm í Falkenberg en heima í …
Heimildamynd um Norræna goðafræði og Íslendingasögur
Sunnudaginn 28. september kl. 16 verður frumsýnd á Söguloftinu í Landnámssetri heimildamynd um Norræna goðafræði og Íslendingasögurnar. Myndin er gerð af austurrískum kvikmyndagerðarmönnum sem hafa áður gert fjölda heimildamynda sem sýndar hafa verið á sjónvarpstöðvum eins og Discovery Channel og National Geography. Myndin hefur verið þrjú ár í undibúningi, tekin víðs vegar um landið þó að stórum hluta á Vesturlandi. …
Stjórnspeki Snorra Sturlusonar eins og hún birtist í Heimskringlu
Þriðjudaginn 23. september kl. 20:30 flytur Sigurður Líndal, prófessor við Háskólann á Bifröst, fyrirlestur í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti. Tilefnið er dánardagur Snorra Sturlusonar þann 23. september 1241. Sigurður mun í erindi sínu leitast við að að varpa ljósi á stjórnspeki Snorra Sturlusonar eins og hún birtist í Heimskringlu, en með orðinu stjórnspeki er átt við það sem oft er …