Hvítárvellir – Efnistökusvæði – Breyting á aðalskipulagi

viktor1

Í samræmi við 1. mgr. 30. gr skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst skipulagslýsing að breytingu á aðalskipulagi í Borgarbyggð.

Hvítárvellir

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 13.05.2026 að auglýsa lýsingu að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 fyrir efnistökusvæði í landi Hvítárvalla í Borgarbyggð.

Lýsingin tekur til breytingar á landnotkun svæðis í landi Hvítárvalla úr landbúnaðarland í efnistökusvæði. Markmið breytingarinnar er að heimila allt að 35.000 m³ efnistöku á um 2 ha svæði í selholti á Heggstaðanesi skammt vestan Grímsár. Í undirbúningi er lagning 19 kV loftlínu í jörð á milli tengivirkis á Vatnshömrum og Ferjubakka undir Hvítá. Stefnt er að því að nýta efni úr landi Hvítárvalla fyrir framkvæmdina þar sem styttra er að sækja efni þar. Aðkoma að svæðinu er frá Hvítárvallavegi (510) um núverandi slóða sem er á skrá yfir vegi í náttúru Íslands.

· Skipulagslýsing er aðgengileg í skipulagsgátt

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 621/2026) frá 18.05.2026 til og með 04.06.2026 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina, senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða senda á netfangið skipulag@borgarbyggd.is.
Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Borgarbyggð, 18. maí, 2026.

Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar