Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar Borgarbyggðar vegna breytingar á deiliskipulaginu Húsafell 3, verslunar- og þjónustulóð við Kaldadalsveg.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12. febrúar 2026 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Húsafells 3, verslunar- og þjónustulóð við Kaldadalsveg skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mál nr. 1551/2025 í skipulagsgátt
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála.
Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
1. apríl 2026
