Jól í nýju landi

  Í Safnahús Borgarfjarðar miðvikudaginn 13. desember kl. 17:00 fáum við til okkar íbúa af svæðinu sem eiga það sameiginlegt að hafa flust hingað til Borgarbyggðar frá öðru landi.  Þeir ætla að segja frá upplifun sinni af því að halda jól á Íslandi og hvernig þeir hafa tekið inn nýjar hefðir eða endurhugsað gamlar. Þetta eru þær:    Tetiana Rets …

Myndamorgunn í Safnahúsi

Föstudaginn 1. desember 2023, milli kl. 10:00 – 12:00, verður myndamorgunn á vegum Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar þar sem gestir aðstoða við greiningu ljósmynda úr eigu safnsins. Verið velkomin!

Ljóð að láni

Við í Safnahúsinu ætlum að gleðjast á degi íslenskrar tungu 16. nóvember og bjóðum ykkur velkomin á kíkja við hjá okkur. Á bókasafninu verður í tilefni dagsins ýmislegt skemmtilegt í boði tengt tungumálinu. Hægt verður til að mynda að fá að láni ljóða upplestur. Það felur í sér upplestur starfsmanna á íslenskum ljóðum í fallegu umhverfi Pállssafns. Upplesturinn er hugsaður …

Myndamorgun

Föstudaginn 17. nóvember 2023 kl. 10.00 verður hér í Safnahúsinu myndamorgunn á vegum Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar þar sem gestir aðstoða við greiningu ljósmynda úr eigu safnsins. Verið velkomin!“

IN MEMORIAM – SÝNINGAROPNUN

4. NÓVEMBER 2023 Sýningaropnun í Safnahússi Borgarfjarðar, verk eftir listamanninn Stefán Geir Karlsson. Á myndlistarsýningunni verða sýndir skúlptúrar byggðir á sögum Egils Skallagrímssonar sem Stefán Geir skapaði skömmu áður en hann féll frá, auk málverka frá því hann lét draum sinn rætast og stundaði myndlistarnám í Danmörku. Opnunin stendur frá 14.00 – 17.00. Allir velkomnir og frítt inn.

Góð aðsókn í Safnahúsið

Í júnímánuði heimsóttu Safnahúsið ríflega 1100 gestir og er mikil ánægja með þann uppgang sem á sér stað í safninu um þessar mundir. Ýmislegt hefur verið um að vera það sem af er sumri; má þar nefna rappnámskeið fyrir börn haldið af meðlimum úr Reykjavíkurdætrum, bókamarkaður og skiptimarkaður með plöntur og fræ, myndasýningar og fánasmiðja og fleira. Í júní kláraðist …

Haust í Safnahúsinu

Nóg er um að vera í Safnahúsinu núna þegar fer að hausta. Sumarsýningin Spor eftir spor- Íslenski búningurinn líður senn undir lok og er síðasti sýningar dagur 9. september, við tekur sýning Vatnslitafélags Íslands Blæbrigði sem opnar 23. september. Hér fyrir neðan er hægt að sjá dagskrá haustsins og síðan verður hver og einn viðburður auglýstur sértaklega. september 14.00 – …

Blómstranna mæður – fyrirlestur 9. September nk.

Guðrún Hildur Rosenkjær klæðskeri og sagnfræðingur heldur kynningu á búningum kvenna á 18. og 19. öld sem byggist á rannsóknum hennar síðastliðin 25 ár, í Safnahúsi Borgarfjarðar 9. september kl. 14.00. Fatagerð á heimilum var gríðarlega mikilvæg fyrir Íslendinga öldum saman. Konur áttu stóran þátt í fatagerðinni og verkþekking lærðist milli kynslóða. Hversdagsfatnaður var mikilvægur en eins og sagan sýnir …

Halló heimur!

Welcome to Grunnborg. This is your first post. Edit or delete it, then start writing!