Myndamorgunn 18. september á Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar

Föstudaginn 18. september 2026, milli kl. 10.00-12.00  verður myndamorgunn á vegum Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar þar sem gestir aðstoða við greiningu ljósmynda úr eigu safnsins. Myndin hér að ofan er úr safni Sigurbjargar Guðmundsdóttur ljósmóður og tengist Varmalandi. Við myndina hefur Sigurbjörg skrifað „Helstu gæjarnir í yngri deildinni“.   Verið velkomin! Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar Safnahúsinu, Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi

Uppskeruhátíð Sumarlesturs 3. september n.k.

Fimmtudaginn 3. september kl. 16-17:30 bjóðum við öllum krökkum í heimsókn til okkar í Safnahúsið og fögnum frábærum árangri í sumarlestursátakinu í ár:  „Gúndi geithafur og grasleitin mikla“ Um 80 börn skráðu sig til leiks og þar af skiluðu 54 börn 312 miðum í happamiðakassann sem þýðir að þau lásu í 312 klukkustundir. Sérstakur gestur dagsins er Gunni Helga, hinn …

Þinn eigin sumarlestur

Þriðjudaginn 30. júní frá kl. 15:17 bjóðum við öllum krökkum í heimsókn til okkar í Safnahúsið á viðburðinn „Þinn eigin sumarlestur“. Boðið verður upp á Krítarsmiðju úti á bílaplani þar sem við sköpum listaverk í anda sumarlesturs. Klukkan 16:00 mætir Ævar Þór Benediktsson og les úr nýútkominni bók sinni Skaðræðisskepnur og hvetur um leið alla til dáða í sumarlestrinum. Við …

Starfsdagur hjá starfsfólki Safnahúss

Þriðjudaginn 23. júní sl. var starfsdagur hjá starfsfólkinu, þar sem dagurinn var nýttur í fræðslu og heimsóknir. Byrjað var á kynningu og umræðu um nýja viðbragðsáætlun en í henni eru meðal annars upplýsingar um hvernig bregðast eigi við hugsanlegri vá sem upp getur komið, t.d. við bruna, leka eða öskufall, og ógnað getur bæði gestum safnsins og safnmunum þess. Mikilvægt …

Bókmenntaganga á vegum Safnahúss Borgarfjarðar

Læsi á stöðu og baráttu kvenna er samstarfsverkefni almenningsbókasafna á Íslandi og Kvennaárs og er ætlað að vekja athygli á þróun kvenréttinda. Laugardaginn 16. maí kl. 11:15 verður því boðið upp á að fara í „Bókmenntagöngu“.  Mæting er í Safnahúsið og genginn verður stuttur hringur í nágrenninu og endað aftur í Safnahúsi.  Á völdum stöðum verður staldrað við og lesnir stuttir …

Sýningaropnun í Hallsteinssal

Laugardaginn 11. apríl kl. 14:00 opnar sýningin Brotabrot  í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar. Á sýningunni BROTABROT sýnir listahópurinnARKIR fjölbreytt úrval bókverka. Verkin sameina mismunandi listform en í grunninn er unnið með pappír og pappírsbrot. Bók er í eðli sínu nytjahlutur, en í bókverkunum er leikið með þrívítt formið og frumþætti bóka: síður, arkir og spjöld. Á sýningunni leitast listamennirnir við að …

Opnunartími yfir páskana

2. apríl skírdagur – Lokað 3. apríl, föstudagurinn langi – Lokað 4. apríl, laugardagur Opið 11:00 – 14:00 5. apríl, páskadagur – Lokað 6. apríl, annar í páskum – Lokað Laugardaginn 11. apríl opnar í Hallsteinssal ný sýning, Brotabrot, þar sem bókbandshópurinn Arkir sýnir verk sín.

Páskafjör í Safnahúsinu

Verið velkomin til okkar í Safnahúsið miðvikudaginn fyrir páska, 1. apríl (þetta er sko ekkert plat), við verðum með föndurhorn fyrir fjölskylduna þar sem hægt verður að perla og föndra allskonar fallegt og skemmtilegt og eiga notalega stund hjá okkur. Páska glaðningur í lok föndurs fyrir þau yngstu. Verið velkomin.

Jóhanna Skúladóttir lætur af störfum sem Héraðsskjalavörður og Þórný Hlynsdóttir tekur við.

Um næstu mánaðamót verða þær breytingar hjá Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar að Jóhanna Skúladóttir lætur af störfum eftir rúmlega 20 ára starf fyrir safnið og Þórný Hlynsdóttir tekur við keflinu. Jóhanna hefur starfað hjá sveitarfélaginu frá árinu 2002, lengst af sem héraðsskjalavörður eða í yfir 20 ár við góðan orðstýr. Um leið og við þökkum Jóhönnu fyrir gott og óeigingjart starf fyrir …

Jóhanna Skúladóttir kveður starf sitt sem héraðsskjalavörður

Núna um mánaðamótin lætur af störfum Jóhanna Skúladóttir, héraðsskjalavörður Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar. Jóhanna hefur starfað hjá sveitarfélaginu frá árinu 2002 við góðan orðstýr, lengst af sem héraðsskjalavörður í yfir 20 ár.  Um leið og við þökkum Jóhönnu fyrir gott og óeigingjart starf í skráningu og vinnslu skjala og ljósmynda fyrir sveitarfélagið og samfélagið, óskum við henni velfarnaðar í framtíðinni. Jóhanna stýrir …