Nóg er um að vera hjá okkur þessa dagana í Safnahúsi Borgarfjarðar. Við erum mjög þakklát fyrir þann mikla meðbyr sem við finnum fyrir með starf okkar. Maí er bara rétt að byrja og nóg af að taka og hafa á fyrstu 10 dögunum ríflega 450 manns sótt okkur heim á fjölbreyttum viðburðum. Hæst ber OK- litla barnamenningarhátíðin þar sem …
MYNDAMORGUNN á Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar n.k. föstud. kl. 10:00-12:00
Föstudaginn 10. maí 2024, milli kl. 10:00 – 12:00 verður myndamorgunn á vegum Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar þar sem gestir aðstoða við greiningu ljósmynda úr eigu safnsins. VERIÐ VELKOMIN! Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar Safnahúsinu, Bjarnabraut 4-6, Borgarnesi
Garðyrkjuspjall í Safnahúsi Borgarfjarðar með Sædísi, mánudaginn 6. maí kl. 17:00
Mánudaginn 6. maí kl. 17:00 kemur Sædís Guðlaugsdóttir, garðyrkjufræðingur úr gróðrastöðinni „leym-mér-ei“ í heimsókn og spjallar um allt sem viðkemur vor- og sumarverkunum í garðinum. ALLIR VELKOMNIR Frír aðgangur eins og á aðra viðburði Safnahússins.
PRINSESSU STUND. Sögustund á íslensku og spænsku laugardaginn 4. maí kl. 12:00 í Safnahúsi Borgarfjarðar
Á laugardaginn 4. maí kl. 12.00 koma í heimsókn í Safnahús Borgarfjarðar sögupersónur úr Frozen ævintýrinu og lesa fyrir börn, bæði á íslensku og spænsku. Síðan verða föndraðar kórónur. Únase a la familia de la nieve para disfrutar de una hora de cuentos y manualidades en Safnahús Borgarfjarðar. La Reina de las Nieves leerá en su mejor islandés, la Princesa …
Sérstakir gestir verða á myndamorgni hjá Héraðskjalasafninu n.k. föstudag
Föstudaginn 19. apríl milli kl. 10:00 – 12:00 er myndamorgunn hjá Héraðskjalasafni Borgarfjarðar og koma til okkar sérstakir gestir. Þeir Óskar Jóhann Óskarsson og Friðrik Þór Guðmundsson munu sýna Borgarnes myndir og aðrar myndir frá afa þeirra, Friðriki Þorvaldssyni. Friðrik átti heima lengi vel í Borgarnesi og lét til sín taka í samfélaginu á mörgum sviðum, en hafði einnig mikinn …
SÝNINGAROPNUN OG FYRIRLESTUR Í HALLSTEINSSAL – SKESSUR SEM ÉTA KARLA
SKESSUR SEM ÉTA KARLA Verið velkomin á sýningaropnun og fyrirlestur Dagrúnar Óskar Jónsdóttur um mannát í íslenskum þjóðsögum. Sýningaropnun er laugardaginn 6. apríl milli 14:00 og 16:00 í Safnahúsi Borgarfjarðar. Allir velkomnir.
MYNDAMORGUNN Á HÉRAÐSSKJALASAFNI BORGARFJARÐAR
Föstudaginn 5. apríl 2024, milli kl. 10.00-12.00 verður myndamorgunn á vegum Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar þar sem gestir aðstoða við greiningu ljósmynda úr eigu safnsins. Verið velkomin! Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar Safnahúsinu, Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi
Páskafjör í Safnahúsinu miðvikudaginn 27. mars n.k.
Miðvikudaginn fyrir páska, milli kl. 15:00 – 17:00, verðum við í Safnahúsinu með föndurhorn fyrir fjölskylduna þar sem hægt verður að perla og föndra allskonar fallegt og skemmtilegt. __ Páskaeggjaleit verður síðan kl. 16.00 fyrir yngstu gestina. Leikreglur kynntar fyrir gestum rétt áður en leitin hefst. __ Verið velkomin! Safnahús Borgarfjarðar Bjarnarbraut 4-6, Borgarnes
Vilborg Davíðsdóttir – bókaspjall í Safnahúsinu þriðjudaginn 19. mars n.k.
Í Safnahúsi Borgarfjarðar, n.k. þriðjudag 19. mars. kl. 20:00, verður Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur, með erindi þar sem hún mun segja frá nýjustu bók sinni „Land næturinnar“, frá sögusviði bókarinnar og rannsóknum í kringum skrifin á bókinni, en einnig hvernig þessi bók tengist fyrri bókum höfundar. Allir velkomnir og heitt á könnunni. Safnahús Borgarfjarðar, Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi
MYNDAMORGUNN Á HÉRAÐSSKJALASAFNI BORGARFJARÐAR föstudaginn 15. mars n.k.
Föstudaginn 15. mars 2024, milli kl. 10.00-12.00 verður myndamorgunn á vegum Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar þar sem gestir aðstoða við greiningu ljósmynda úr eigu safnsins. Verið velkomin! Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar Safnahúsinu, Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi




