Jóhanna Skúladóttir kveður starf sitt sem héraðsskjalavörður

Núna um mánaðamótin lætur af störfum Jóhanna Skúladóttir, héraðsskjalavörður Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar.

Jóhanna hefur starfað hjá sveitarfélaginu frá árinu 2002 við góðan orðstýr, lengst af sem héraðsskjalavörður í yfir 20 ár.  Um leið og við þökkum Jóhönnu fyrir gott og óeigingjart starf í skráningu og vinnslu skjala og ljósmynda fyrir sveitarfélagið og samfélagið, óskum við henni velfarnaðar í framtíðinni.

Jóhanna stýrir sínum síðasta myndamorgni fyrir skjalasafnið á föstudagsmorgninum 27. mars í Safnahúsinu – og strax eftir það verður kveðjuhóf henni til heiðurs.