Rútuferðir

Boðið er upp á rútu heim úr Óðali einu sinni í viku fyrir unglinga utan Borgarness. Rúturnar keyra GBF hringinn (Hvanneyri, Kleppjárnsreykir, Varmaland, Bifröst) og einnig fer bíll á Mýrarnar sem stoppar við afleggjara upp að bæjum á þjóðveginum.

Nauðsynlegt er að skrá sig í rútu. Skráning fer fram vikulega í gegnum Abler.

Ekki er rukkað gjald fyrir fyrir rútuferðirnar.  

Leiðbeiningar fyrir Abler

  • Heimsækið vefverslun Abler hér
  • Veljið réttan aldurshóp (miðstig eða unglingastig)
  • Starfsfólk þarf svo að bæta unglingi við hóp sem getur skráð sig í rútur heim. Sendið skilaboð á starfsfólk í gegnum Abler eða tölvupóst á odal@borgarbyggd.is og óskið eftir að bæta viðkomandi við Mýrar eða GBF.
  • Nú getið þið skráð ykkur í rútur heim!