Forsíða

Óðal er félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga í Borgarbyggð. Félagsmiðstöðin er opin tvisvar í viku fyrir 8.-10. bekk og tvisvar í viku fyrir 5.-7. bekk. 

Óðal er aðili að SAMFÉS, samtökum félagsmiðstöðva. Í Óðali starfar húsráð unglinga sem skipuleggur dagskrá og viðburði í samvinnu við starfsfólk. Meðal árlegra viðburða í Óðali má nefna Vökunótt, LAN og hópferð á Samfestinginn. Á reglubundnum opnunum er boðið upp á alls kyns skemmtilega viðburði, böll og opið hús.