Fyrir 4., 5., 6. og 7. bekk.
Námskeiðið er 1.-5. júlí og samtals 14 klst.
Horft er á útiveru, sund og leiki á mismunandi stöðum í Borgarbyggð.
Áhersla er lögð á það að minnka kröfur og leyfa börnum að njóta sín í flæði og leik í öruggu umhverfi.
Dagskráin er flæðandi og verður aðlöguð að hverju barni svo að allir geti notið sín.
Skráning fer fram í Völu, takmarkaður fjöldi
Fyrirspurnir: Dagbjort@birtaidja.is
Haldið af Dagbjörtu Birgisdóttur, iðjuþjálfa
Kostnaður þátttakenda er 7420 kr.
Dagskrá:
Mánudagur – 1. júlí:
Staðsetning: Túnið fyrir aftan Menntaskólann í Borgarnesi
Tími: Hópur 1 kl 10:00 -12:00 og Hópur 2 kl 12:00 – 14:00
Þriðjudagur – 2. júlí:
Staðsetning: Varmaland (hjá íþróttahúsinu)
Tími: Hópur 1 kl 10:00 -13:00 og Hópur 2 kl 13:00 – 16:00
Miðvikudagur – 3. júlí:
Staðsetning: Varmaland (hjá íþróttahúsinu) – Taka með sundföt.
Tími: Hópur 1 kl 10:00 -13:00 og Hópur 2 kl 13:00 – 16:00
Fimmtudagur – 4. júlí:
Staðsetning: Einkunnir (Bílastæðið)
Tími: Hópur 1 kl 10:00 -12:00 og Hópur 2 kl 12:00 – 14:00
Föstudagur – 5. júlí:
Staðsetning: Hreðavatn (hjá húsinu)
Tími: Báðir hópar kl 10:00 – 14:00. Boðið upp á bátsferð og að veiða, velkomið að koma með veiðistangir og mikilvægt að hafa viðeigandi fatnað. Grillaðar pulsur.