Safnahús Borgarfjarðar er safnaklasi fimm safna þar sem nýjar aðferðir eru nýttar til miðlunar á grundvelli frumkvæðis, virkni og samvinnu. Söfnin eru þessi:
- Héraðsbókasafn Borgarfjarðar
- Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar
- Byggðasafn Borgarfjarðar
- Listasafn Borgarness
- Náttúrugripasafn Borgarfjarðar
Stofnunin er staðsett í Borgarnesi. Hún er í eigu Borgarbyggðar en þjónar einnig Skorradalshreppi og Hvalfjarðarsveit með þjónustusamningum. Starfssvæði hússins nær því allt frá rótum Snæfellsness suður til Hvalfjarðar.
Stofnunin er leitandi og opin í starfi sínu og vinnur náið með samfélaginu á starfssvæði sínu sem nær frá rótum Snæfellsness til Hvalfjarðar.