Menningarsjóður Borgarbyggðar var stofnaður í Borgarnesi 22. mars 1967 í tilefni af 100 ára verslunarafmæli staðarins, en nú starfar sjóðurinn á öllu svæði Borgarbyggðar. Stofnfé sjóðsins var ein milljón króna sem greidd var af Borgarneshreppi árin 1968-1977. Tekjur sjóðsins eru árlegt framlag bæjarsjóðs Borgarbyggðar, vextir, áheit, minningargjafir og aðrar gjafir til menningarmála.
Eftirtaldir eiga sæti í stjórn sjóðsins 2022 – 2026:
- Guðrún Kristjánsdóttir formaður
- Jenný Lind Egilsdóttir
- Jóhanna Möller
- Bjarki Þór Grönfeldt
- Sigurþór Kristjánsson
Tilgangur menningarsjóðs er að megin stoð í menningarlífi Borgarbyggðar og leggja í starfi sínu sérstaka rækt við grasrótina í menningarlífi á svæðinu.
Úthlutanir styrkja úr sjóðnum fara fram tvisvar ár hvert. Fyrri úthlutunin skal fara fram fyrir þann 1. maí og hin síðari fyrir þann 1. október.