Í Skallagrímsgarði í Borgarnesi er frisbígolfvöllur með fimm brautum. Völlurinn er fjölbreyttur, skemmtilegur og hentar öllum aldurshópum.
Íbúar og gestir geta fengið frisbídiska að láni sér að kostnaðarlausu í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi.
Það er mikilvægt að skila diskunum eftir notkun.

Á Hvanneyri er búið að koma upp níu holu frisbígolfvelli. Völlurinn er hannaður af Birgi Ómarssyni formanni Íslenska frisbígolfsambandsins.
Braut 1 er á milli Hvanneyrarkirkju og Gamla skóla, síðan er kastað frá Skemmunni yfir tjörnina við Vígdísarlund. Við Yndisgróður er braut 3. Frá húsinu Hvönnum er braut 4, kastað er að Ásgarði, síðan er braut 5 sunnan við skólahúsið. Á milli Ásgarðs og stúdentagarðanna er braut 6. Braut 7 er við trjáröðina austan við fótboltavöllinn og loka brautin er norðan við grunnskólan og að trjálundinum við Svíra.

Skemmtilegt er að segja frá því að á vellinum eru fyrstu körfurnar sem smíðaðar voru hér á landi og settar fyrst upp í Gufunesi.