Lóðahreinsunardagur í Borgarnesi

Nú stendur yfir hreinsunarátak í Borgarbyggð. Fyrsta sópun sumarsins á gangstéttum og götum er langt komin og búið að hreinsa öll opin svæði á Hvanneyri auk flestra lóða. Einnig hefur drjúgur hluti opinna svæða í Borgarnesi verið hreinsaður eftir veturinn. Laugardaginn 3. maí er lóðahreinsunardagur í Borgarnesi. Þá verður garðaúrgangur hirtur við heimili íbúa í Borgarnesi og einnig verður garðaúrgangi …

Hundahlýðninámskeið í Borgarnesi

Hundaskólinn ,,Hundalíf“ heldur hvolpa og grunnnámskeið í Borgarnesi dagana 3-4 maí 2008. Sjá hér auglýsingu um námskeiðið. Minnt er á að helmingsafsláttur er á hundaleyfisgjöldum hjá Borgarbyggð ef eigendur hafa farið með hunda sína á hlýðninámskeið hjá viðurkenndum hundaskóla. Frekari upplýsingar eru hér á heimasíðu Borgarbyggðar. Hundaeigendur er hvattir til að sækja svona námskeið og skila inn vottorði á skrifstofu …

Opinn íbúafundur á Hvanneyri

Í kvöld, þriðjudaginn 29. apríl, kl. 20:00 verður haldinn opinn íbúafundur í Ásgarði á Hvanneyri. Þar verður m.a. farið yfir: • Framtíðarsýn LBHI • Skipulagsmál • Framkvæmdir og viðhald • Fráveitumál • Þjónustumál, verslun og bensínafgreiðsla. Fundarstjóri verður Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri Borgarbyggðar. Sjá hér auglýsinguna. Mynd: Björg Gunnarsdóttir

Úthlutað úr Húsaverndunarsjóði

Úthutað hefur verið í fjórða sinn úr Húsaverndunarsjóði Borgarbyggðar, sem er sameiginlegt verkefni Borgarbyggðar og Sparisjóðs Mýrasýslu. Alls bárust 10 umsóknir um styrki vegna ýmissa verkefna og var að þessu sinni ákveðið að styrkja aðeins eitt þeirra, þ.e. endurbætur á gömlu skemmunni á Hvanneyri. Það er sóknarnefndin á staðnum sem sótti um styrkinn í því augnamiði að nýta húsið sem …

Evrópa unga fólksins

Evrópa unga fólksins verður með kynningarfund í Borgarnesi þriðjudaginn 29.apríl n.k. kl 21.00 í Ungmennahúsinu Mími. Sjá hér auglýsingu um kynningarfundinn.  

Boðið upp á bílaþvott í Borgarnesi

Nemendur í 9. bekk Grunnskólans í Borgarnesi bjóða upp á bílaþvott helgina 3. og 4. maí til styrktar skólaferðalagi sem þau fara í til Svíþjóðar í haust. Sjá hér auglýsinguna frá þeim.  

List án landamæra

Sölusýning Borgfirskra utangarðslistamanna stendur nú yfir í Landnámssetrinu. Sýningin er haldin í tengslum við hátíðina List án landamæra sem opnuð var 18.apríl. Allur ágóði af sölu verkanna rennur í ferðasjóð hópsins sem hyggst fara til Vínar í Austurríki 29.maí til 2.júní á ráðstefnu Evrópsku Outsiders Art samtakanna. Sjá heimasíðu Borgfirskra utangarðslistamanna http://outsidersart.blogspot.com (Fréttatilkynning) Mynd: Gísli Einarsson

Fréttabréf Borgarbyggðar er komið út 04.apríl

Fréttabréf Borgarbyggðar verður borið í hús í dag. Fréttabréfið kemur út annan hvern mánuð og er þetta annað tölublað ársins 2008. Í fréttabréfinu kennir ýmissa grasa að venju; hreinsunardögum í Borgarbyggð eru gefin góð skil og einnig birtist í því atburðadagatal þar sem fram komu helstu hátíðir sumarsins. Fastir liðir eru sveitarstjórnarmaðurinn; sem að þessu sinni er Finnbogi Leifsson, fréttaritari …