Stjórnspeki Snorra Sturlusonar eins og hún birtist í Heimskringlu

Þriðjudaginn 23. september kl. 20:30 flytur Sigurður Líndal, prófessor við Háskólann á Bifröst, fyrirlestur í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti. Tilefnið er dánardagur Snorra Sturlusonar þann 23. september 1241. Sigurður mun í erindi sínu leitast við að að varpa ljósi á stjórnspeki Snorra Sturlusonar eins og hún birtist í Heimskringlu, en með orðinu stjórnspeki er átt við það sem oft er …

Heimildamynd um Norræna goðafræði og Íslendingasögur

Sunnudaginn 28. september kl. 16 verður frumsýnd á Söguloftinu í Landnámssetri heimildamynd um Norræna goðafræði og Íslendingasögurnar. Myndin er gerð af austurrískum kvikmyndagerðarmönnum sem hafa áður gert fjölda heimildamynda sem sýndar hafa verið á sjónvarpstöðvum eins og Discovery Channel og National Geography. Myndin hefur verið þrjú ár í undibúningi, tekin víðs vegar um landið þó að stórum hluta á Vesturlandi. …

Hundahlýðninámskeið í Borgarnesi

Hundaskólinn ,,Hundalíf“ heldur hvolpa og grunnnámskeið hjá KB búrekstrardeild í Borgarnesi dagana 24. september, 1. og 8. október 2008. Sjá hér auglýsingu um námskeiðið. Minnt er á að helmingsafsláttur er á hundaleyfisgjöldum hjá Borgarbyggð ef eigendur hafa farið með hunda sína á hlýðninámskeið hjá viðurkenndum hundaskóla. Frekari upplýsingar má nálgast hér á heimasíðu Borgarbyggðar. Hundaeigendur eru hvattir til að sækja …

Deiliskipulag íbúaðabyggðar í Brákarey

Kanon arkitektar hafa undanfarið ár verið að vinna áfram með vinningstillögu sína úr samkeppni um deiliskipulag íbúðabyggðar í Brákarey. Stefnt að opnum íbúafundi bráðlega og því er birt hér á netinu drög að deiliskipulagi og deiliskipulagsforsögn til upplýsingar fyrir þá sem láta sig málið varða. Íbúafundurinn verður auglýstur síðar en þar munu hönnuðir skipulagsins mæta og kynna tillögur sínar nánar. …

Danskur kór heldur tónleika í Reykholtskirkju

Næstkomandi laugardag, þann 20. september, heldur danskur kór tónleika í Reykholtskirkju kl. 16:00. Kórinn sem heitir Koncertforeningens Kor flytur á tónleikunum bæði dönsk og íslensk tónverk. Í kórnum eru rúmlega 50 manns. Myndin af kórnum er fengin af heimasíðu kórsins í Danmörku.

Menning í landslagi

Menningarráð Vesturlands og Háskólinn á Bifröst halda sameiginlega ráðstefnu um byggingararfinn, skipulag, íslenska byggingarlist í dreifbýli og list í landslagi á Bifröst laugardaginn 27. september kl 13.00 til 16.00. Sjá hér dagskrá ráðstefnunnar.  

Listsýningunni í Jafnaskarðsskógi fer að ljúka

Listsýningunni í Jafnaskarðsskógi við Hreðavatn lýkur síðustu helgina í september þ.e. helgina 27. – 29. Sýningin var opnuð 6. júlí í sumar og hefur verið mjög vel af henni látið. Sýningin er samvinnuverkefni Menningarráðs Vesturlands og Skógræktar ríkisins. Listamennirnir eru allir af Vesturlandi. Sjá hér auglýsingu .                           …

Endurvinnsluvikan

Endurvinnsluvikan hófst í dag. Hún er haldin í fyrsta skipti hér á Íslandi 12. – 19. september. Að átakinu stendurÚrvinnslusjóður í samvinnu við Umhverfisráðuneyti, Menntamálaráðuneyti, Sorpu, Gámaþjónustuna, Íslenska gámafélagið og Endurvinnsluna. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra setti endurvinnsluvikuna fyrr í dag. Hér má nálgast frekari upplýsingar, námsefni og fleira www.urvinnslusjodur.is/endurvinnsluvika. Þar sem kannanir benda til þess að ungt fólk á aldrinum 16-20 …

Barna- og unglingafræðsla í Mýrasýslu 1880-2007

Í tilefni af aldarafmæli skólahalds í Borgarnesi haustið 2008 og 50 ára afmælis skólahalds að Varmalandi 2005 verður gefin út saga barna og unglingafræðslu í Mýrasýslu, 1880-2007. Bókin er í stóru broti, 304 síður að lengd og ríkulega myndskreytt. Flestar myndirnar hafa ekki birst á prenti áður. Boðið er upp á forsölu á bókinni og fá áskrifendur nafn sitt birt …

Jafnréttisáætlun Borgarbyggðar

Jafnréttisáætlun Borgarbyggðar var staðfest af sveitarstjórn um miðjan ágúst síðastliðinn. Markmið jafnréttisáætlunarinnar er eins og segir þar ,,… að stuðla að jafnri stöðu og jöfnum möguleikum kvenna og karla í Borgarbyggð“. Hana má nú nálgast hér á heimasíðunni. Sjá hér.