Hryssa í óskilum

Brún útigengin óafrökuð tveggja vetra hryssa hefur verið í óskilum á Ölvaldsstöðum í Borgarbyggð síðan í maí. Hryssan er ekki mörkuð og að öllum líkindum ekki örmerkt. Ekki hefur tekist að finna eigandann þrátt fyrir eftirgrennslan.   Vinsamlegast hafið samband við Guðrúnu (437 1686) eða Björgu (433 7100) ef þið teljið ykkur kannast við hryssuna.  

Hestur í óskilum

Brúnn þriggja til sex vetra stóðhestur var handsamaður við Hrafnkelsstaði í síðustu viku og er í vörlsu eftirlitsmanns. Hann er ómarkaður. Ekki er vitað hvort hann er örmerktur.   Upplýsingar um hestinn gefur Halldór (8923044) og Björg (4337100).  

Metmánuður í sundlaugum

Það hefur heldur betur verið annasamt í sundlaugum sveitarfélagsins í sumar enda hefur landinn ferðast mikið innanlands eins og spáð var. Sundlaugar á Varmalandi og Kleppjárnsreykjum hafa fengið svipaðan fjölda gesta í stærsta mánuði sumarsins júlí eða um 1.800 gesti sem er veruleg aukning frá í fyrra.   Sundlaugin Borgarnesi sló öll met fékk tæplega 20.000 gesti í júlímánuði sem …

Nytjamarkaður í Brákarey 8. ágúst

Það verður nytjamarkaður í Brákarey í Borgarnesi, í matsal sláturhússins, laugardaginn 8. ágúst kl. 12.00 – 16.00Allur ágóði rennur til styrktar starfi Körfuknattleiksdeildar Skallagríms.Markaðurinn verður opinn alla laugardaga í sumar út ágúst.Um leið og þakkað er frábærar viðtökur þá er minnt á að hægt er enn að taka við dóti frá þeim sem vilja styrkja starf deildarinnar. Á markaðnum er …

Opnun Tómstundarskólans

Tómstundaskólinn opnar þriðjudaginn 11. ágúst. Opið verður frá kl. 08.00 – 16.00 alla daga fram að skólabyrjun. Þeir sem ætla að nýta sér vistun þessa vinsamlegast sendið tölvupóst á gunny@grunnborg.is eða hafið samband við ritara grunnskólans. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 10. ágúst.    

Læða í óskilum í Borgarnesi

Brúnbröndótt læða u.þ.b. þriggja mánaða hefur verið að sniglast um í Bjargslandinu síðustu daga. Íbúi við Fálkaklett hefur skotið skjólshúsi yfir köttinn í dag. Þetta er ekki sami köttur óg auglýstur var í gær en hann var á sömu slóðum og eigandi hans hefur gefið sig fram. Hægt er að hringja í síma 821 6697 (Rósa) til að ná í …

Sýning Katrínar stendur til 21. ágúst

Vegna óvenju mikillar aðsóknar hefur hannyrðasýning Katrínar Jóhannesdóttur í Safnahúsi: „Þá er það frá“ verið framlengd til 21. ágúst n.k. Nú þegar hafa um 750 manns sótt sýninguna heim og ekkert lát virðist á vinsældum hennar. Athygli vekur hvað allt handbragð er vandað auk þess sem hönnun Katrínar hefur hlotið lof, en þar gætir m.a. áhrifa frá íslenska þjóðbúningnum. Uppstilling …

Landbúnaðarsýningin GLÆTA 2009 Reiðhöllinni Borgarnesi 28.-30. ágúst

Dagana 28.-30. ágúst n.k. stendur rekstrarfélagið Selás ehf fyrir landbúnaðarsýningu í og við reiðhöllina í Borgarnesi. Sýningin er að fá góðar undirtektir og verður hún eina sinnar tegundar á landinu í haust. Vel fer á því að halda þessa sýningu í Borgarfirði þar sem að í héraðinu eru mörg af öflugustu búum landsins, eins hentar húsnæði reiðhallarinnar afar vel fyrir …

Lausaganga hunda í þéttbýli er bönnuð

Að undanförnu hefur talsvert verið kvartað yfir lausum hundum í þéttbýli Borgarbyggðar.   Af því tilefni er bent á að lausaganga hunda er bönnuð í þéttbýli í Borgarbyggð og skulu hundar vera í taumi þegar að eigendur þeirra eða forráðamenn eru með þá úti að ganga. Einnig er það skylda forráðamanns hunds að hreinsa upp saur og annan óþrifnað eftir …