Árlegt Forvarna- og æskulýðsball unglinga fór fram í Borgarnesi síðastliðinn fimmtudag. Um 300 hundruð unglingar frá 16 skólum komu á ballið og skemmtu sér hið besta án vímuefna. Æskulýðsballið er mjög vinsælt meðal unglinga og þessi árlega uppákoma er eitt fjölmennasta unglingaball sem haldið er hér um slóðir. Í mörgum skólanna eru unnin forvarnarverkefni dagana fyrir ball, bæði inní í …
Borgarnes – bærinn okkar
Opinn fundur í Hótel Borgarnesi þriðjudaginn 15. nóvember kl. 20.00. Kynnt verða helstu verkefni sem Neðribæjarsamtökin gætu unnið að 2011 – 2012 og rætt um hvernig hlúa má að þeim þannig að þau vaxi og dafni. M.a mun Sigríður Margrét Guðmundsdóttir fara yfir stöðuna eins og hún er í dag, Eiríkur Jónsson segir frá Danshátíð/Brákarhátíð, kynntar verða hugmyndir og vangaveltur …
Frá Tónlistarskólanum
Íslensk sönglög í Tónlistarskólanum á Degi íslenskrar tungu Dagur íslenskrar tungu er miðvikudaginn 16. nóvember. Söngnemendur Tónlistarskólans munu flytja íslensk sönglög í sal skólans. Það verður opið hús frá kl. 16.00 til 17.00 og allir velkomnir að líta við.
Andabær auglýsir eftir matráði
Okkur í leikskólanum Andabæ vantar matráð til starfa vegna veikindaforfalla. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun desember. Um 100% starf er að ræða. Allar nánari upplýsingar veitir Valdís Magnúsdóttir leikskólastjóri í síma 4370120. Umsóknarfrestur er til 25. nóvember.
Þéttbýlin í dreifbýli Vesturlands
Ráðstefnan „Þéttbýlin í dreifbýli Vesturlands“ verður haldin í Ásgarði á Hvanneyri, fimmtudaginn 17. nóvember kl. 13.00 – 17.00. Ráðstefnan er á vegum Menningarráðs Vesturlands, Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Háskólans á Bifröst. M.a. verður fjallað um háskólana, atvinnu, skipulag fleira Allt áhugafólk um nærandi samfélag er hvatt til að mæta segir í auglýsingu en hana má nálgast hér.
Jólaskreytingar og jólatréð 2011
Vegna niðurskurðar verða ekki settar upp jólaskreytingar á vegum sveitarfélagsins í ár. Jólatréð á Kveldúlfsvellinum verður þó á sínum stað og samkvæmt áralangri hefð verða ljós þess tendruð í upphafi aðventu. Sunnudaginn 27. nóvember kl. 17.00 verður kveikt á trénu við hátíðlega athöfn á Kveldúlfsvelli. Grunur leikur á að þá komi jafnveljólasveinarnir í heimsókn með eitthvað gott í poka handa …
Félagsmiðstöðin flytur í „Skemmuna“
Endurvakin hefur verið félagsmiðstöð fyrir unglinga á Hvanneyri. Staðsetning miðstöðvarinnar síðasta ár, við hliðina á barnum, þótti ekki nógu heppileg og var því farið í að leita að öðru húsnæði. Húsnæði á Hvanneyri liggur ekki á lausu og varð þrautalendingin að leita til forráðamanna safnaðarheimilisins. Stjórn safnaðarheimilisins með sr. Flóka Kristinsson í broddi fylkingar tók erindinu ljúfmannlega og ákvað að …
Hádegisleiðsögn í Safnahúsi
Nú fer hver að verða síðastur að sjá örsýninguna um Gunnu á Húsafelli og Kristleif Þorsteinsson á Stóra Kroppi. Einungis eru nokkrir sýningardagar eftir. Af þessu tilefni verður boðið upp á hádegisleiðsögn með fróðleik um þessi merku frændsystkin föstudaginn 11. nóvember kl. 12.30. Leiðsögnin tekur 25 mínútur og það er Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður Safnahúss sem segir frá.
Landbúnaðarnefnd fundar um dýralæknaþjónustu
Landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar lýsir yfir afar þungum áhyggjum af stöðu dýralæknaþjónustu í Borgarbyggð en nefndin tók málið fyrir á fundi sínum í gær. Í fundargerð segir m.a. „Eins og staðan er í dag er ekki tryggt að bændur fái þjónustu dýralækna á dagvinnutíma. Nýorðnar breytingar hafa það í för með sér að starfandi dýralæknum á svæðinu hefur fækkað. Landbúnaðarnefnd krefst þess …
Nemendur í unglingadeildum sáu „Hvað EF“
Nýverið fóru nemendur í unglingadeildum Grunnskóla Borgarfjarðar á leiksýninguna „Hvað EF“ í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Í byrjun október sáu nemendur Grunnskólans í Borgarnesi leikritið en allir krakkar í 9. og 10. bekkjum í Borgarbyggð áttu þess kost að sjá sýninguna. Sýningin er nýstárleg og fjörug – skemmtifræðsla og forvarnarleikrit, þar sem dregnar eru fram kaldar staðreyndir varðandi neyslu vímuefna, einelti, …