Keppni í undanriðli (Vesturlandsriðill) í Skólahreysti fer fram í Smáranum í Kópavogi á fimmtudaginn, 27. mars í íþróttahúsi Breiðabliks. Tvö lið grunnskóla Borgarbyggðar taka þátt í keppninni, lið Grunnskólans í Borgarnesi og sameiginlegt lið Varmalands- og Kleppjárnsreykja Grunnskóla Borgarfjarðar. Gangi ykkur vel krakkar! Grænt lið Grunnskólans í Borgarnesi skipa: Ásgrímur Agnarsson – upphýfingar/dýfur Hafrún Birta Hafliðadóttir – armbeygjur/hreystigreip Húni …
Skipulagslýsing – Stóra Brákarey
Skipulagslýsing vegna breytinga á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022, þéttbýlisuppdráttur Borgarness, breytt landnotkun í Stóru-Brákarey Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 13. febrúar 2014 að auglýsa lýsingu vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Um er að ræða breytta landnokun í Stóru-Brákarey samkvæmt uppdrætti og greinargerð dagssettri 26. febrúar 2014. Lýsingin liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi …
Fundur hjá Hollvinum Borgarness
Hollvinir Borgarness (fyrrum Neðribæjarsamtökin) efna til fundar þriðjudaginn 26. mars kl. 17.15 á Sögulofti Landnámsseturs. Það er margt sem þarf að ræða og skipuleggja. Samtökin hvetja alla þá sem eru með hugmyndir að verkefnum eða málefnum til að mæta. Verkefni sem íbúar geta tekið sig saman um að vinna til hagsbóta fyrir Borgarnes og bæjarbúa. Drög að dagskrá:1. Samþykkt Hollvina …
Mottumarstónleikar Söngbræðra í Borgarneskirkju
Karlakórinn Söngbræður verður með tónleika í Borgarneskirkju fimmtudaginn 27. mars næstkomandi. Tónleikarnir eru í samvinnu við Krabbameinsfélag Borgarfjarðar í tilefni Mottumars. Allur ágóði rennur til Krabbameinsfélagsins. Dagskrá tónleikanna er fjölbreytt og hressileg og sex kórfélagar syngja einsöng. Undirleikari er Heimir Klemensson og stjórnandi Viðar Guðmundsson. Aðgangseyrir kr. 2.000 og tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
Búið að opna innisundlaugina í Borgarnesi
Nú er búið að opna innisundlaugina í Borgarnesi en viðgerðir og endurbætur á henni hafa staðið yfir í nokkurn tíma. Einnig hafa endurbætur staðið yfir á þreksal íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi og er reiknað með að hann verði opnaður í næstu viku.
Framhaldsskólanemar fá frítt í sund og þreksal
Nú stendur yfir verkfall framhaldsskólakennara og óvíst hve lengi það varir. Ákveðið hefur verið að Borgarbyggð bjóði öllum framhaldsskólanemendum í Menntaskóla Borgarfjarðar og nemendum í öðrum skólum sem eiga lögheimili í Borgarbyggð, frítt í sund og þreksali sem sveitarfélagið rekur, á meðan að á verkfalli stendur. Þetta gildir eingöngu á skólatíma og eru framhaldsskólanemendur hvattir til að notfæra sér þetta …
Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ
Umsóknarfrestur til að sækja um styrki úr Fræðslu- og verkefnasjóði Ungmennafélags Íslands er til 1. apríl. Umsóknum skal skilað rafrænt á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem er að finna inn á heimasíðu UMFÍ www.umfi.is undir styrkir. Tilgangur sjóðsins er m.a.að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum …
Útboð – Göngubrú við Suðurnesklett
Umhverfis- og skipulagssvið Borgarbyggðar óskar eftir tilboðum í verkið: Göngubrú við Suðurnesklett, Borgarnesi Stál- og timburvirki Verkið er fólgið í því að smíða og setja upp göngubrú við Suðurneskletta í Borgarnesi. Helstu magntölur eru: Stál 9,537 kg Brúargólf úr timbri 72 m2 Klætt timburhandrið 95 m Steyptar undirstöður 6,3 m3 Bergboltar 9 stk Útboðsgögn verða afhent með rafrænum hætti, hægt …
Útboð – Bílaplan við Reykholtskirkju
Umhverfis- og skipulagssvið Borgarbyggðar óskar eftir tilboðum í verkið: Bílaplan við Reykholtskirkju Endurnýjun á klæðningu Verkið er fólgið í því að fjarlægja núverandi yfirborðslag, setja plan í réttar hæðir og halla og klæða með olíumöl. Helstu magntölur eru: Endurnýjun á klæðningu 2400 m2 Útboðsgögn verða afhent með rafrænum hætti, hægt er að óska eftir gögnum á skrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, …
„Ljósið í myrkrinu“ – sýning í Safnahúsi
Í Safnahúsi Borgarfjarðar stendur nú yfir sýning um Þórð Jónsson (1874-1962) frá Mófellsstöðum. Þórður var stórmerkur maður og afrek hans kraftaverki líkust. Ljós hans í myrkrinu var að geta smíðað vandaða og nytsama gripi þrátt fyrir algert sjónleysi frá unga aldri. Sýningin er í anddyri bókasafns. Þar má sjá smíðisgripi Þórðar, muni úr eigu hans, ljósmyndir og fróðleik. Veitt er …