Okkur hjá Borgarbyggð bráðvantar aðila til að sinna heimilishjálp vestast í sveitarfélaginu í nokkra klukkutíma á viku. Launin munu ekki ekki gera þér kleift að kaupa banka eða flugfélag, jafnvel þótt þú farir vel með, en kannski er gaman að kynnast öðru fólki og láta gott af sér leiða. …
Starfsáætlun fræðslunefndar og fleira
Starfsáætlun fræðslunefndar Borgarbyggðar, haustönn 2014 er nú komin á vefinn. Starfsáætlunina má lesa hér. Einnig erindisbréf starfshóps um málefni leikskólans Hnoðrabóls í Reykholtsdal og fundargerð fyrsta fundar hópsins. Hér má sjá erindisbréfið og fundargerðina.
Heimsókn sænskra sagnamanna í Snorrastofu
Laugardaginn 6. september kl. 17.00 verður í Snorrastofu í Reykholti hópur sænskra sagnamanna á vegum SAMFUNDET SVERIGE – ISLAND. Fyrir hópnum fer sagnamaðurinn og rithöfundurinn Per Gustavsson en ferð hópsins hefur fengið heitið, Kultur og sagoresa med Sagobygden till Island 4.-11. september 2014. Boðið er til dagskrár, sem fram fer á „skandinavísku“, í bókhlöðu Snorrastofu. Dagsskráin er öllum opin …
Aðalsteinn Íslandsmeistari í rallý
Borgfirðingurinn Aðalsteinn Símonarson er Íslandsmeistari í rallý árið 2014. Þetta var ljóst eftir að hann og félagi hans Baldur Haraldsson frá Sauðárkróki lentu í öðru sæti í Rallý Reykjavík sem lauk um síðustu helgi og dugði það þeim til sigurs á Íslandsmótinu. Í tilefni þessa færðu Björn Bjaki Þorsteinsson forseti sveitarstjórnar og Guðveig Eyglóardóttir formaður byggðarráðs Aðalsteini blómvönd frá sveitarfélaginu …
Tónlistarskólastarfið fer vel af stað
Ragnheiður og Ólafur frá ÞorgautsstöðumTónlistarskóli Borgarfjarðar fór vel af stað í haust, aðsóknin er góð er er skólinn fullsetinn. Kennsla hófst mánudaginn 25. ágúst síðastliðinn.Flestir nemendur eru í píanónámi, en einnig er forskóladeild við skólann, kennt á gítar, fiðlu, blásturshljóðfæri og trommur meðal annars. Einnig er söngkennsla fyrir bæði börn og fullorðna. Kennarar við skólann eru 10 í vetur og …
Góð gjöf til nemendagarða Menntaskóla Borgarfjarðar
Fulltrúar KB og Nettó í Borgarnesi komu færandi hendi í gær með höfðinglega gjöf til nemendagarða Menntaskóla Borgarfjarðar. Fyrirtækin gáfu hvort um sig 500.000 krónur, samtals eina milljón sem ætluð er til húsgagnakaupa. Nemendagarðarnir sem voru teknir í notkun í haust eru í eigu Menntaskóla Borgarfjarðar og Borgarbyggðar. Á myndinni sem tekin var utan við nemendagarðana eru Guðsteinn Einarsson kaupfélagsstjóri, …
Samstarfssamningur um tómstundastarf
Kolfinna Jóhannesdóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar og Sigurður Guðmundsson sambandsstjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar undirrituðu í dag samstarfssamning um tómstundastarf fyrir 6 til 16 ára börn í Borgarbyggð. Tilgangurinn með samningnum er að auka fjölbreytni í tómstundastarfi fyrir börn á grunnskólaaldri, fjölga þátttakendum í skipulögðu félags- og tómstundastarfi og að stuðla að því að vinnudagur barnanna verði sem heildstæðastur. Hlutverk UMSB samkvæmt samningnum …
Hunda- og kattaleyfi í gildi hjá Borgarbyggð
Sett hefur verið á netið endurnýjuð yfirlitsskrá yfir heimili skráðra hunda og katta í Borgarbyggð. Sjá hér.
Snjómokstur í Borgarnesi – útboð
Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í snjómokstur í Borgarnesi Verkið felst m.a. í almennum snjómokstri og hálkueyðingu gatna í Borgarnesi. Samningstímabilið nær til fjögurra ára, til 1. maí 2018. Útboðsgögn verða afhent rafrænt án endurgjalds í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi frá 9. september 2014, senda má beiðni um gögn á netfangið jokull@borgarbyggd.is Tilboð verða opnuð í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut …
Laust starf við Grunnskólann í Borgarnesi
Ert þú hress einstaklingur sem sem býr yfir ríkum samstarfs- og samskiptahæfileikum, sýnir furmkvæði og sjálfstæð vinnubrögð en umfram allt skartar jákvæðni og gleði? ÞÁ ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ ÞÉR! Vegna forfalla vantar okkur mann eða konu til að sinna ræstingu í hlutastarfi í Grunnskólanum í Borgarnesi. Vinsamlega hafðu samband við Signýju Óskarsdóttur skólastjóra, signy@grunnborg.is Einnig er hægt að …