Réttardagar í Borgarbyggð: Nesmelsrétt í Hvítársíðu, laugardaginn 6. september. Fljótstungurétt í Hvítársíðu, sunnudaginn 14. september. Kaldárbakkarétt í Kolbeinsstaðahreppi sunnudaginn 6. september. Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, miðvikudaginn 10. september. Brekkurétt í Norðurárdal, sunnudaginn 14. september. Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, sunnudaginn 21. september. Svignaskarðsrétt, mánudaginn 15. september. Þverárrétt …
Það er leikur að læra
Nú er sumarleyfum að ljúka og skólarnir í Borgarbyggð hefja störf að nýju. Skólasetning Grunnskóla Borgarfjarðar verður fimmtudaginn 21. ágúst sem hér segir: kl. 10.00 á Kleppjárnsreykjum kl. 12.00 á Hvanneyri kl. 14.00 á Varmalandi í Þinghamri Grunnskólinn í Borgarnesi hefur skólaárið formlega með setningu í Borgarneskirkju föstudaginn 22. ágúst og er dagskráin eftirfarandi: kl. 10.00, skólasetning hjá 1. …
Auglýsing um skipulag í Borgarbyggð – Bjarnhólar í landi Hamars
Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar ásamt umhverfisskýrslu samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt í sveitarstjórn Borgarbyggðar 10. apríl 2014. Breytingin felst í að landnotkun við Bjarnhóla í landi Hamars verði breytt úr landbúnaði í sorpförgun og efnistöku samkvæmt uppdráttum og greinargerð dags. 8. apríl 2014. Skipulagssvæðið tekur til 9,8 ha.Tillagan ásamt …
Viðburður í fólkvangnum Einkunnum miðvikudagskvöldið 20. ágúst
Stjórn Skógræktarfélags Borgarfjarðar hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu. ,,Miðvikudaginn 20. ágúst kl 18:00 ætlum við í Skógræktarfélaginu að hittast í Einkunum (fyrir ofan Borgarnes). Við ætlum að kíkja eftir sveppum, kveikja eld, gera ketilkaffi, prófa okkur áfram í útieldun, spjalla og fræðast hvert af öðru. Við hvetjum alla hvort sem þeir hafa áhuga á útivist, skógrækt, sveppatínslu og/eða …
Íbúafundur vegna breytinga á umferðarskipulagi
Boðað er til almenns íbúafundar vegna fyrirhugaðra breytinga á umferðarskipulagi á skólaholtinu í Borgarnesi. Í breytingunum felst m.a. að gera einstefnu um Bröttugötu og Helgugötu, breikka gangstéttar, bæta aðgengi fyrir gangandi vegfarendur og gera svokölluð „sleppistæði“ við lóð grunnskólans í Borgarnesi. Nýja umferðarskipulagið er í samræmi við tillögur vinnuhóps sem starfaði á vegum sveitarfélagsins. Á fundinum mun Jökull Helgason forstöðumaður …
Samvera, sveppir og fleira skemmtilegt í Einkunnum
Miðvikudaginn 20. ágúst kl 18.00 ætla félagar í Skógræktarfélagi Borgarfjarðar að hittast í Einkunum. Ætlunin erað kíkja eftir sveppum, kveikja eld, laga ketilkaffi og prófa útieldun, spjalla og fræðast hvert af öðru. Skógræktarfélagar hvetja alla, hvort sem þeir hafa áhuga á útivist, skógrækt, sveppatínslu og/eða náttúruskoðun, til að mæta og saman skemmtilega stund.
Auglýsing um skipulag í Borgarbyggð – Stóra Brákarey
Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt í sveitarstjórn Borgarbyggðar 14. ágúst 2014. Breytingin felst í að landnotkun í Stóru-Brákarey verði breytt samkvæmt uppdráttum og greinargerð dagsettri 8. ágúst 2014. Skipulagssvæðið tekur til Stóru Brákareyar.Tillagan mun liggja frammi hjá Skipulagsstofnun, á skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14, Borgarbyggð, frá …
Nýr íþrótta- og tómstundaskóli
Byggðarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að stofna nýjan Íþrótta- og tómstundaskóla í samvinnu við Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB). Gert er ráð fyrir að starfsemin hefjist um næstu áramót. Undirbúningur er í fullum gangi og stefnt er að undirritun samnings á milli Borgarbyggðar og UMSB í næsta mánuði. Í framhaldi af því verður ráðinn tómstundafulltrúi til UMSB sem mun hafa umsjón með verkefninu …
Minnisvarði um Erlend Gunnarsson á Sturlureykjum
Sunnudaginn 17. ágúst næstkomandi verður afhjúpaður minnisvarði um Erlend Gunnarsson bónda og þúsundþjalasmið á Sturlureykjum. Erlendur hóf fyrir rúmlega 100 árum að nýta jarðvarma til hagsbóta fyrir heimili sitt og samborgara sína. Athöfnin fer fram á Merkjaholti milli Grófar og Sturlureykja í Reykholtsdal og hefst kl. 15.00. Það eru afkomendur Erlendar sem bjóða til athafnarinnar og allir eru velkomnir. …
Félagsleg heimaþjónusta – starfsmaður óskast
Starfsmaður óskast í félagslega heimaþjónustu / heimilishjálp á Hvanneyri og nágrenni. Um er að ræða 25 – 30% starf. Launakjör skv. kjarasamningum. Akstur er greiddur. Umsóknarfrestur er til 22. ágúst. Nánari upplýsingar veita: Elín Valgarðsdóttir verkstjóri: felagsstarf@borgarbyggd.is, s: 8401525 eða Hjördís Hjartardóttir félagsmálastjóri: hjordis@borgarbyggd.is . Sími 4337100.