Nú er 4. flokkur í knattspyrnu karla hjá Skallagrími að safna sér fyrir keppnisferð sem farin verður næsta sumar á Helsinki Cup í Finnlandi. Af því tilefni ætla strákarnir og foreldrar þeirra að safna saman og farga jólatrjám í Borgarnesi helgina 10. og 11. janúar 2015. Ef þú vilt losna við jólatréið og styrkja strákana í leiðinni vinsamlegast sendu tölvupóst …
Þrettándagleði í Englendingavík
Þrettándagleði verður haldin í Englendingavík í Borgarnesi þriðjudaginn 6. janúar 2015 og hefst kl. 18,30. Þar verður flugeldasýning í boði Borgarbyggðar, Björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi og Björgunarsveitarinnar Heiðars á Varmalandi. Einnig álfasöngur, heitt súkkulaði, smákökur og gleði. Fólk er beðið að koma ekki með eigin flugelda á svæðið. Sjá nánari auglýsingu hér
Húsaleigubætur 2015
Endurnýja þarf húsaleigubætur um áramót sbr. lög nr. 138/1997. Því þurfa allir íbúar Borgarbyggðar sem húsaleigubóta njóta að endurnýja umsókn sína um bætur. Rafrænt form umsóknareyðublaðs er að finna á vef Borgarbyggðar, www.borgarbyggd.is, undir umsóknareyðublöð. Umsókn þarf að hafa borist í síðastalagi 16. janúar til þess að bætur fyrir janúar falli ekki niður. Til að umsóknarferlið gangi vel og örugglega …
Sundlaugin á Kleppjárnsreykjum
Sundlaugin á Kleppjárnsreykjum er opin í dag, þriðjudaginn 30. desember frá kl. 8.30 til kl. 16.00. Lokað verður á morgun, gamlársdag og einnig lokað á nýársdag.
Jólaball í Hjálmakletti 28. desember
Sameiginlegt jólaball allra barna í Borgarbyggð verður haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi sunnudaginn 28. desember kl. 15.00 – 17.00. Dansað verður kringum jólatréð, jólasveinar kíkja við með glaðning og Skátarnir verða með kaffisölu. Allir velkomnir á þessa fjölskylduskemmtun. Sjá auglýsingu hér.
Laus stöf á leikskólanum Andabæ
Í leikskólanum Andabæ á Hvanneyri eru laus störf leikskólakennara frá 5. janúar 2015. Um tvö 100% störf er að ræða. Allar nánari upplýsingar veitir Valdís Magnúsdóttir, leikskólastjóri í síma 437 7170 og 847 2447 eða um netfangið: andabaer@borgarbyggd.is Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn starfskraftur með aðra uppeldismenntun og /eða reynslu. Samkvæmt …
Íþróttamaður ársins – tilnefningar óskast
Stjórn UMSB óskar eftir ábendingum frá almenningi um íþróttafólk sem þykir hafa náð góðum árangri eða skarað fram úr í sinni íþrótt á árinu 2014. Samkvæmt reglum um kjör íþróttamanns Borgarfjarðar þá er stjórn UMSB heimilt að tilnefna allt að þrjá einstaklinga eða pör að eigin frumkvæði eða eftir ábendingum frá almenningi. Ábendingarnar skulu berast á skrifstofu UMSB á Borgarbraut …
Akstur Strætó yfir jól og áramót
Akstur Strætó um jól og áramót verður sem hér segir: Þorláksmessa – ekið samkvæmt áætlun. Aðfangadagur – ekið samkvæmt laugardagsáætlun, vagnarnir hætta akstri upp úr kl. 14.00 (nánari upplýsingar um hverja leið fyrir sig í leiðabók á strætó.is). Jóladagur – enginn akstur. Annar í jólum – ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur – ekið er samkvæmt laugardagsáætlun, vagnarnir hætta akstri upp …