Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir umsjónarkennara á unglingastigi Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfsstöðva grunnskóli með rúmlega 200 nemendur. Starfsstöðvar hans eru á Kleppjárnsreykjum, Varmalandi og Hvanneyri. Laus er staða umsjónarkennara á unglingastigi í Kleppjárnsreykjadeild næsta skólaár. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KI og LS. Umsóknarfrestur er til 20. júlí. Umsóknum skal skilað skriflega til skólastjóra með upplýsingum um menntun, réttindi og …
Starfsmaður í félagsþjónustu
Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf í félagsþjónustu. Starfshlutfall er 70% og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Verkefni Vinna í barnaverndarmálum. Þjónusta við fólk með fötlun; ráðgjöf og meðferð. Ráðgjöf og þjónusta við börn og fjölskyldur. Handleiðsla starfshópa. Hæfniskröfur Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. sálfræði, félagsráðgjöf. Reynsla af vinnu í barnavernd og/eða félagsþjónustu. Þekking og reynsla …
Laus staða leikskólastjóra í Andabæ á Hvanneyri
Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf leikskólastjóra Andabæjar á Hvanneyri. Starfshlutfall er 100% og brýnt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst. Leikskólastjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu Borgarbyggðar. Leikskólastjóri veitir skólanum faglega forstöðu og ber ábyrgð á rekstri skólans. Menntunar- og hæfniskröfur Leikskólakennaramenntun. Reynsla af stjórnun leikskóla. …
Laus staða – skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi
Staða skólastjóra við Grunnskólann í Borgarnesi er laus til umsóknar. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á árangur og vellíðan nemenda í góðu samstarfi við starfsmenn. Grunnskólinn í Borgarnesi er skóli með um 300 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn. Starfsemi skólans skal einkennast af fjölbreytni, sveigjanleika og víðsýni, …
Laust staða – sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs Við leitum að öflugum leiðtoga í stöðu sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með fræðslumálum, félagsþjónustu og íþrótta- og tómstundamálum. Verkefni og ábyrgðarsvið: Yfirumsjón með gerð fjárhags- og starfsáætlana fyrir sviðið og stofnanir þess Yfirstjórn stofnana sem heyra undir sviðið Vinnur að stefnumótun og mannauðsmálum fyrir sviðið og stofnanir þess Eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða sem í …
Leikskólinn Hnoðraból – skemmtilegt starf
Leikskólakennara vantar til starfa í leikskólann Hnoðraból, Grímsstöðum frá og með 6. ágúst n.k.,um er að ræða fulla stöðu leikskólakennara. Í leikskólanum dvelja að jafnaði 20 börn á aldrinum 18 mánaða til 5 ára og 7starfsmenn. Áhersluatriði í leikskólastarfinu eru: Einstaklingsmiðað nám, leiðtogahæfni, heilsuefling og umhverfismennt. Hæfniskröfur: Leyfisbréf sem leikskólakennari Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum Frumkvæði …
Fulltrúi á umhverfis- og skipulagssvið
Hrafnhildur Tryggvadóttir hefur verið ráðin fulltrúi á umhverfis- og skipulagssvið Borgarbyggðar. Hrafnhildur hefur lokið BS námi frá Landbúnaðarháskóla Íslands í Náttúru-og umhverfisfræði með áherslu á náttúrunýtingu. Hún hefur töluverða þekkingu á umhverfis-og skipulagsmálum meðal annars gegnum störf hjá UMÍS ehf, Environice Umhverfisráðgjöf Ísland og hjá Upplýsinga-og kynningarmiðstöð Vesturlands.
Grenndarstöð við veginn að Valbjarnarvöllum lokað
Föstudaginn 26. júní 2015 var grenndarstöðinni við veginn að Valbjarnarvöllum lokað. Lokun þessi er í samræmi við breytingar sem unnið hefur verið að, á fyrirkomulagi sorphirðu í dreifbýli. Í því felst að heimili í dreifbýli eru komin með sorptunnu fyrir heimilisúrgang og grænu tunnuna. Stærri gámastöðvum í dreifbýli verður fækkað smátt og smátt og stefnt að því að þær verði …
Útisundlauginni lokað á sunnudaginn
Vegna viðgerða á dúk útisundlaugarinnar í Borgarnesi verður hún lokuð frá og með sunnudeginum 28. júní, um óákveðinn tíma.Innilaugin verður opin eins og verið hefur og pottarnir í fullum gangi.