Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar og stofnana fyrir árin 2016-2019

Tillaga að fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir árin 2016-2019 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær 10. desember. Gert er ráð fyrir að rekstrarafgangur í samstæðureikningi A og B hluta árið 2016 verði 109,5 m.kr. og að rekstrarjöfnuður samkvæmt sveitarstjórnarlögum fyrir tímabilið 2015-2017 verði jákvæður um 130 m.kr. að frádregnum söluhagnaði á árinu 2015. Áætlun gerir ráð fyrir að framlegð batni …

Vel heppnað opið hús hjá Öldunni

Í dag var opið hús hjá Öldunni; dósamóttöku og vinnustofu í tilefni flutnings í nýtt húsnæði í Brákarey. Nýja húsnæðið er talsvert stærra en fyrrum Fjöliðja, aðstaða öll betri og býður upp á fjölbreyttari möguleika í verkefnum fyrir starfsmenn. Í Öldunni starfa samtals 15 manns auk fjögurra leiðbeinenda. Gestum var boðið upp á kaffi og konfekt. Starfsmönnum Öldunnar voru færð …

Stuðningsfulltrúa vantar við Kleppjárnsreykjadeild

Stuðningsfulltrúa vantar við Kleppjárnsreykjadeild Grunnskóla Borgarfjarðar frá og með upphafi skólastarfs 4. janúar 2016. Um er að ræða 80% starf. Laun skv. kjarasamningi stéttarfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Adda Konráðsdóttir í síma 8401520 Einnig má senda fyrirspurn á netfangið ingibjorg.adda.konradsdottir@gbf.is    

Fundarboð

Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Borgarbyggðar fimmtudaginn 10. desember 2015 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og hefst kl. 16:00. Nánari upplýsingar um dagskrá fundarins má nálgast hér.  

Opið hús í Öldunni

Í tilefni þess að Fjöliðjan nú Aldan hefur flutt í nýtt húsnæði út í Brákarey þá verður opið hús nk. föstudag 11. desember frá kl. 14:00-15:30. Kaffi og smákökur í boði. Hlökkum til að sjá ykkur.    

Áætlanir um lokun vega vegna veðurs

Lögregla og björgunarsveitir áætla að loka helstu leiðum að og frá Borgarbyggð í dag og kvöld eins og hér segir: Kjalarnes kl. 15 Hafnarfjall kl. 21 Brattabrekka kl. 16 Holtavörðuheiði kl. 16    

Jólaútvarp Grunnskólans í Borgarnesi

  Útsendingar jólaútvarps Grunnskólans í Borgarnesi hefjast í dag, mánudag og standa yfir fram á föstudagskvöld. Jólaútvarpið er mjög metnaðarfullt verkefni sem allir nemendur skólans koma að. Dagskráin hefst kl. 10 í dag með ávarpi útvarpsstjóra, Snæþórs Bjarka Jónssonar, sem er einnig formaður nemendafélagsins. Síðan tekur við þétt og góð dagskrá sem samanstendur meðal annars af hljóðrituðum þáttum, fréttum, viðtölum …

Jólatónleikar Tónlistarskólans

Sexhent á píanó; Veronika Lif, Kolfinna Dís og Valborg ElvaÞessa viku standa hinir hefðbundnu jótatónleikar Tónlistarskóla Borgarfjarðar yfir. Nemendur skólans koma fram og flytja fjölbreytta tónlist. Tónleikarnir verða sem hér segir: Mánudag 7. des kl. 17:00 í sal Tónlistarskólans, Borgarbraut 23, Borgarnesi Þriðjudag 8. des kl. 17:00 í sal Tónlistarskólans, Borgarbraut 23, Borgarnesi Miðvikudag 9. des, tvennir tónleikar í Logalandi, …

Slæm veðurspá

Mjög slæm veðurspá er næstu sólahringa fyrir landið allt. Fólk er hvatt til þess að fylgjast vel með veðri og færð og vera ekki á ferð að nauðsynjalausu. Einnig er fólk hvatt til að huga að niðurföllum til að koma í veg fyrir vatnstjón, festa sorptunnur, taka inn garðhúsgögn og aðra lausamuni, sjá nánari upplýsingar á heimasíðu Almannavarna um forvarnir …

Gámastöðin lokar snemma

Vegna yfirvofandi óveðurs lokar gámastöðin í Borgarnesi kl. 16:00 í dag mánudaginn 7. des. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem það kann að valda.