Starfsmann vantar strax til 15.ágúst í 75% starf við Sundlaugina á Kleppjárnsreykjum vinnutími frá kl 12:30-18:30 frá fimmtudegi til mánudags. Frí þriðjudaga og miðvikudaga. Nánari upplýsingar veitir Ingunn í síma 898 1210
Íbúum fjölgar í Borgarbyggð.
Eftir nokkra fækkun íbúa á árunum eftir hrun þá er íbúum Borgarbyggðar farið að fjölga á nýjan leik. Á síðustu þremur árum hefur íbúum sveitarfélagsins fjölgað um 4,8% eða nálægt 170 manns. Þann 1. janúar 2016 voru íbúar Borgarbyggðar samtals 3.637. Það skiptir miklu máli fyrir samfélagið allt að þróunin sé í þessa átt. Eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði í héraðinu hefur …
Hjólað hringinn í kring um landið
Þorsteinn Eyþórsson er nú við það að ljúka hringferð sinni á reiðhjóli umhverfis landið. Er hann aðeins á undan áætlun en hans er að vænta yfir Borgarfjarðarbrúna kl. 18:30 í dag. Ferðin hefur gengið vel og er þess vænst að einhverjir komi yfir fjörð og hjóli með honum síðasta spölinn. Ferðinni lýkur svo formlega við Geirabakarí þar sem hún hófst.
Kjördeildir í Borgarbyggð 2016
AUGLÝSING UM SKIPAN Í KJÖRDEILDIR Í BORGARBYGGÐ Við forsetakosningar laugardaginn 25. júní 2016 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (Menntaskólanum) í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár. Kjörfundur hefst kl. 9,oo og lýkur kl. 22,oo Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kjörfundur hefst …
Úthlutun styrkja úr Jafnréttissjóði Íslands 19. júní
Þann 19. júní s.l. var úthlutað styrkjum úr jafnréttissjóði Íslands í fyrsta sinn. Anna Magnea Hreinsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs Borgarbyggðar hlaut þar styrk að upphæð 1 millj. kr. til verkefnis sem ber heitið: „Ekki vera yfir aðra hafin, né undir aðra gefin heldur standa jafnfætis öðrum“ Meginmarkmið verkefnisins er að efla sjálfsmynd drengja og stúlkna í skólum Borgarbyggðar. Áhersla verði lögð …
Aldan
Fjöliðjan flutti í desember sl. út í Brákarey, að Brákarbraut 25, og fékk nýtt nafn Aldan – dósamóttaka og Aldan – vinnustofa. Öll aðstaða er betri, bæði mikið meira rými og bjartara. Standsetningu húsnæðisins er ekki lokið en vonir standa til að það verði fyrr en seinna. Aldan dósamóttaka er opinn frá 8:00-12:00 og 13:00-16:00. Dósamóttakan tekur á móti plastflöskum, …
17. júní í Borgarbyggð
Nálgast má dagskrá hátíðarhalda í Borgarbyggð á 17.júní undir viðburðir. Hátíðarhöld verða í Borgarnesi, á Hvanneyri, í Reykholti og í Lundarreykjadal. Skrúðganga verður frá Borgarneskirkju í Skallagrímsgarð kl. 14:00 og tekur hátíðardagskrá við í Skallagrímsgarði þegar þangað er komið. Athugið að fornbílar og bifhjól verða á ferðinni í Borgarnesi kl.13.00.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Gunnar Sigurgeir Ragnarsson hefur verið ráðinn sem skipulags- og byggingarfulltrúi Borgarbyggðar. Gunnar er byggingarfræðingur BSc frá Vitusbering Horsens í Danmöku og með sveinsprófi í húsasmíði frá Fjölbrautarskóla Vesturlands. Hann hefur starfað innan byggingariðnaðarins í um 25 ár og sem skipulags- og byggingarfulltrúi Grundarfjarðarbæjar sl ár. Alls bárust 4 umsóknir um starfið. Aðrir umsækendur voru: Berglind Ragnarsdóttir, Myrra Ösp Gísladóttir og …
Kjörskrá vegna forsetakosninga
Kjörskrá Borgarbyggðar vegna forsetakosninga sem fram fara laugardaginn 25. júní 2016 liggur frammi á skrifstofu Borgarbyggðar að Borgarbraut 14, á afgreiðslutíma, frá og með 15. júní til kjördags. Sveitarstjóri
Vegna lúpínuátaks á Búðarkletti
Af gefnu tilefni er áréttað að Borgarbyggð hefur ekki skipulagt herferð gegn útbreiðslu lúpínu í landi sveitarfélagsins. Lúpínuátak sem auglýst er á Búðarkletti miðvikudaginn 15. júní einskorðast við Búðarklett og er því einungis um örlítið brot af þeirri lúpínu sem náð hefur fótfestu í bæjarlandinu að ræða. Þegar sótt var um styrk til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna Söguhringsins í Borgarnesi, var …








