Unglingalandsmót UMFÍ, það 19. í röðinni, hófst í dag með keppni í golfi og körfubolta. Á morgun föstudag hefst keppni í öðrum greinum en alls er keppt í 14 greinum auk þess sem fjölbreytt afþreyingardagskrá er í boði fyrir alla fjölskylduna. Mótið verður formlega sett á Skallagrímsvelli kl. 20.00 á föstudagskvöld. Unnið hefur verið að undirbúningi um nokkurt skeið með …
Fullt af tækifærum í Borgarbyggð
Hjá Borgarbyggð er verið að auglýsa eftir fólki í nokkur laus störf, nánar er hægt að kynna sér laus störf hjá Borgarbyggð með því að smella hér.
Laust starf við Grunnskóla Borgarfjarðar
Vegna óvæntra forfalla vantar grunnskólakennara við Grunnskóla Borgarfjarðar Kleppjárnsreykjum næsta vetur. Kennslugreinar: • textílmennt, • íslenska og samfélagsgreinar á miðstig Umsóknarfrestur er til 25.júlí. Allar upplýsingar veitir Ingibjörg Adda Konráðsdóttir í síma 8401520 eða í netfangi ingibjorg.adda.konradsdottir@gbf.is
Unglingalandsmót UMFÍ haldið í Borgarnesi.
Dagana 28. – 31. júlí n.k. verður Unglingalandsmót UMFÍ haldið í Borgarnesi. Það er ánægjuefni að Borgarnes skuli enn einu sinni vera vettvangur fyrir þessa glæsilegu fjölskylduhátíð. Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt og sannað að mikill fjöldi keppenda, aðstandenda þeirra og annars áhugafólks mun sækja Borgarnes heim á meðan á unglingalandsmótinu stendur. Í þessu sambandi er það metnaðarmál okkar allra …
Skógarkerfill
Skógarkerfill er ágeng tegund sem hefur sótt í sig veðrið á Suðvesturlandi undanfarin ár. Merkja má aukningu í útbreiðslu skógarkerfils í Borgarbyggð og þekkt er að kerfillinn getur á skömmum tíma orðið að illgresi, þ.e. dreifst og vaxið þar sem fólk kærir sig ekki um. Þrjár leiðir hafa einkum verið notaðar í baráttunni við kerfilinn; beit, sláttur og úðun. Vitað …
Hvanneyrarhátíð 2016
Efnt verður til árlegrar Hvanneyrarhátíðar laugardaginn 9. júlí. Dagskráin er glæsileg og er hún hér meðfylgjandi. smelltu á myndina til að sjá skýrar.< /center>
Brákarhátíð 2016
Brákarhátíð 2016 var haldin hátíðleg um síðustu helgi og var margt á dagskrá. Hverfaskreytingar og götugrill á föstudag, skemmtun í Skallagrímsgarði, kvöldvaka í Englendingavík og fl. á dagskrá á laugardag, ásamt dansleik í Hjálmakletti. Sjá má myndir og fleira á facebook síðu Brákarhátíðar.
Starfsmann vantar strax
Starfsmann vantar strax til 15.ágúst í 75% starf við Sundlaugina á Kleppjárnsreykjum vinnutími frá kl 12:30-18:30 frá fimmtudegi til mánudags. Frí þriðjudaga og miðvikudaga. Nánari upplýsingar veitir Ingunn í síma 898 1210
Kjördeildir í Borgarbyggð 2016
AUGLÝSING UM SKIPAN Í KJÖRDEILDIR Í BORGARBYGGÐ Við forsetakosningar laugardaginn 25. júní 2016 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (Menntaskólanum) í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár. Kjörfundur hefst kl. 9,oo og lýkur kl. 22,oo Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kjörfundur hefst …
Íbúum fjölgar í Borgarbyggð.
Eftir nokkra fækkun íbúa á árunum eftir hrun þá er íbúum Borgarbyggðar farið að fjölga á nýjan leik. Á síðustu þremur árum hefur íbúum sveitarfélagsins fjölgað um 4,8% eða nálægt 170 manns. Þann 1. janúar 2016 voru íbúar Borgarbyggðar samtals 3.637. Það skiptir miklu máli fyrir samfélagið allt að þróunin sé í þessa átt. Eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði í héraðinu hefur …









